Þóruleg
Gleðilega aðventu til að byrja með. Vonandi kveikja allir á fyrsta kertinu hjá sér þeir sem eru með aðventukrans. Þeir sem ekki eiga aðventukrans og eru í prófstressi ættu að láta bjóða sér í kaffi til einhverns sem kveikir á kertinu eða bara á kaffihús og fá sér góða tertu. Við ætlum að kveikja á kerti í dag, kveiktum á litlu sprittkerti við morgunverðaborðið og síðan þá erum við ekki búin að kveikja á neinu kerti.
Í gær skreyttum við aðventukransinn og hlustuðum á jólalög af íslenskri jólageislaplötu sem er líka með dvd útgáfu af jólalögunum. Fyrsta lagið er um það að Stúfur hafi gert þau mistök að setja kartöflu í skóinn hjá stelpu sem taldi sig eiga betra skilið! Frábært að hafa 13 jólasveina, ég sakna þess að setja skóinn út í glugga og bíða spennt eftir því hvað ég skildi hafa fengið. Þetta var skemmtilegur tími, það skrýtna er að ég man ekki einu sinni eftir því þegar ég fattaði að það væru til jólasveinar. Ég held að Atli bróðir hafi trúað á jólasveina fram að fermingu! (Hér get ég sagt svona því hann les aldrei bloggið) Sorrý, kannski trúir hann enn á þá!
Hér er bara einn jólasveinn, ótrúlega fátæklegt. Hann kemur á 5.des og bankar á hurðina og svo þegar maður opnar þá eru pakkar þar en jólasveinninn farinn því hann hefur jú svo mikið að gera.
Mig langar að segja ykkur frá einu sem gerðist í gær. Við fórum í c&A til að skoða jólaföt á Nínu. Sáum þar ótrúlega flottar svartar teinóttar útvíðar fínar buxur og peysuskyrtu (bleik þunn peysa með áfastri skyrtu (kraga)) við, í setti. Nína sá háhæla skó með beinni tá (s.s. ekki oddmjó) og hún fór í þessi föt sem því miður voru aðeins of stór a´hana, ég hefði þurft að stytta buxurnar og stytta ermarnar á peysunni. Hún gekk um gólf og var mjög ánægð með útlit sitt. Leit í spegilinn og sagði, vááá ég er bara orðin Þóra! Ég spurði hana hvað hún væri að meina með því að hún væri orðin Þóra. Jú Þóra væri alltaf svo Kúl og "locker" sem þýðir easy, eða afslöppuð og það væri svo flott! Mér fannst þetta alveg frábært og er ánægð að Þóra systir mín sé hennar átrúnaðargoð í því að verða fullorðin.
Góða aðventu!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home