Dugleg að blogga
Já best að vera dugleg að blogga núna því Þóra systir er að klára prófin sín þessa dagana, á morgun er held ég síðasta prófið hennar. Hún verður nú að hafa eitthvað að gera á milli þess sem hún lærir þessi elska.
Ég og Nína vöknuðum kl.4:30 í morgun. Hún er að fara í svefnrannsókn á sjúkrahúsinu sem við vorum á um daginn og verður því að koma mjög syfjuð svo hún fara í öll svefnstigin í EEG. Það er ekki það skemmtilegasta sem ég geri að vakna svona snemma á morgnana það get ég sagt ykkur. Hún alveg mamma hvað á ég að gera núna? Mamma ég er þreytt! Mamma má ég skafa bílinn? Mamma hvað á ég að gera svo? Það er nefninlega erfitt að lesa þegar maður er þreyttur en það er uppáhalds afþreyjing hennar hér heima. Svo bilaði kasettutækið í morgun þannig að hún getur ekki hlustað á geisladisk í herberginu sínu. Allt svona þegar maður verður að fara að sofa kl11 að kvöldi og vakna hálf fimm að morgni.
Við horfðum á myndina Amadeus í gærkvöldi, myndin með hundinum, ómg, ég hélt hún væri hundraðára, en slík léleg mynd ójbara.
Er of þreytt til að skrifa eitthvað að viti (ekki það að ég geri það öllu jöfnu) þannig að ég bið að heilsa í bili.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home