þriðjudagur, desember 07, 2004

Atvinnuviðtal

Það er spurning með þessa vinnu. Sko þetta er sölustarf, já að selja hjúkrunarvörur, s.s. sáraumbúðir, bleyjur, sprautur, undirbreiðslur, mælingartæki (blóðsykur, blóðþrýsting, og fleira) og fleira. Finna sjálfur kúnna! Laun fara eftir sölunni! Vinnutími fer eftir þörf! Alltaf á ferðinni, að keyra hingað og þangað, út um allt Munsterland, ca. 60 km þvermál, fyrst á eigin bíl en síðar svo á fyrirtækisbíl. Halda kynningar hjá heimahjúkrun, læknum, heimilum. Hlutavinna í byrjun en síðar heilsdags vinna. Ekki að vinna um helgar, ekki að vinna á frídögum.

Mér leist vel á, EN þetta gæti orðið of mikið miðað við að ég ætlaði að fá hlutavinnu. Vinnutími óljós og þetta með launin er ekki alveg eftir mínu höfði. En í næstu viku fer ég í einn dag í kynningu og ætla að vera mjög jákvæð gagnvart þessu. Þetta er lítið fyrirtæki, aðallega tveir sem vinna þarna. Mér finnst þetta mjög spennandi en of óljóst. Kannski lýsist þetta fyrir mér þegar ég fer einn dag í kynningu hjá þeim.

Sjáum hvað setur. Þau eru að leita að manneskju sem ætlar að vinna í mörg mörg ár hjá þeim, ekki í 2-3 ár. Já hvað á maður að segja við því, við stefnum á að fara heim eftir einhver ár, auðvitað segir maður það ekki en það er ansi leiðinlegt að fara svona á bak við fólk. Já og hvort við viljum eignast börn, NEI ÞAÐ ER EKKI Á DAGSKRÁ! Er nú líka lýgi! Ó mamma mía, ég er orðin algjör lygari að atvinnu!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters