Jólasmákökur með rúsínu
Hvernig ætli íslendingi finnist það? Að barnalegar jólasmákökur séu skreyttar með valhnetuhelmingum og rúsínum. Við vorum að baka smákökur í skólanum í vikunni. Ekki neitt eldhús til staðar, bara þurkað af skólaborðum barnanna og komið með tilbúið deig og farið að hnoða, fletja út og gera smákökur. Þær voru svo penslaðar með eggjahræru og sett á skraut, hnetur, möndlur, rúsínur og streusel (húðaðaðar súkkulaði kommur!). Allir skemmtu sér vel, misvel gekk að fletja út, því þetta var smjördeig sem límdist við borð og kökukefli.
Nú ekki nóg með það heldur bökuðum við hér heima þessa sort í dag. Skreyttum með rúsínum og hnetum. Ég held mér finnist nú betra eins og heima á Íslandi að lita flórsykur og skreyta með því.
Alex er kominn heim frá Brussel. Hann var þar í þrjá daga, sem betur fer missti hann ekki af neinni gjöf í dagatali heimilisins þannig að hann gat opnað gjöfina sína í dag. Alltaf mikill spenningur hjá heimilismeðlimum þegar opna má gjöf. Nína er á morgun.
Nikulás, þýski jólasveinninn er á ferðinni á morgun, ég geri ráð fyrir að hann komi til okkar í nótt, amk er Nína búin að setja stígvélið sitt fyrir utan útidyrahurðina og ég held ég setji amk einn skó frá mér til viðbótar. KAnnski maður fái eitthvað, eins og eitt stykki vinnu eða heimsfrið eða eitthvað þess háttar. KAnnski ég ætti aðeins að fara í gegnum óskalistann áður en ég skrifa jóla bréf um hvað hann á að koma með til mín á aðfangadegi......
Í dag fórum við á jólamarkaðinn í bænum og skoðuðum margvíslega handunna vöru. Alltaf gaman að sjá hvað fólk er duglegt að föndra og nýta hlutina. Fallegast finnst mér af prjónuðum, saumuðum, keramik, glerlist, teiknuðu og gifsuðu, trélistaverkin sem eru í formi lítilla stjarna sem maður hengir upp eða eitthvað dúllulegt úr viði. Nú er nýjasta nýtt í föndri að búa til ljós úr gegnsæu blaði og plasti sem maður bindur saman og í miðunni setur maður einhvers konar seríu, er jú mjög fallegt en æi ég held maður verði fljótt leiður á svona. Kannski er það með alla list, bara tímabundið vill maður njóta nærveru hennar, ég er auðvitað bara að meina svona föndurlist. Ekki prófessional list, nota bene.
Kæru vinir og vandamenn, ég óska ykkur gæfuríka og friðsæla aðra aðventu. Ekki gleyma að kveikja á kerti númer tvö.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home