mánudagur, desember 13, 2004

Heimsóknir og flensa á þriðju aðventu

Við vorum í Munster á föstudaginn því Nína átti tíma í EEG. Kannski er hún komin yfir veikindin sem hafa verið að elta hana í nokkur ár, en á því áttu allir von á að við byrjun kynþroskans væri allt búið. Við þurfum að fara aftur næsta mánudag því það þarf að vera alveg öruggt að hætta megi á lyfjunum. Spennandi, ég held að ég og Alex séum ánægðari en hún yfir þessu. En bíðum og sjáum.

Í leiðinni fórum við aðeins á jólamarkaðinn þar, mjög dreyfður og alveg troðið af fólki, ég þarf semsagt ekki að fara þangað aftur!!! En það var gaman að kíkja aðeins og svo fór ég í skólann og tók lest heim. Þegar heim var komið var Alex búinn að gera matinn og Lúlli og Greta alveg að renna í hlað. Alex orðinn þrælkvefaður og á leið til Ítalíu!! Það var nú upplifelsi að fylgjast með komu Lúlla og Gretu og drengjanna. Kúlan orðin stærri og strákarnir alltaf að stækka. En það var nú ekki eins spennandi og bíllinn sem var búinn að fylgja þeim dágóðan spotta..... Lúlli þurfti að sýna skráningarskýrteini bílsins, alla passana og guð má vita hvað. Þetta var semsagt lögregluþjónn, í undercover sem hafði fylgt þeim því það væri verið að leita að peningafalsara á hvítum bíl!!! Lúlla varð svo mikið um að hann læsti bíllyklana sína inni í bílnum, ooohghhhhhhh. En það reddaðist eftir hálftíma vinnu úti í skítakulda náðu karlarnir að opna bílinn.... Svona getur þetta verið.

Þau fóru svo um miðjan dag á laugardeginum og tveimur tímum seinna kom næsta heimsókn, Alex greiið lá bara í bælinu nema kom fram til að elda,,,, illa farið með góða menn. En það var gaman að Pirjo og Martin skyldu koma í heimsókn svona í smá stund. Alltaf nóg að gera hjá manni. Nína var svo yfir sig ánægð þegar við fengum okkur kók og snakk um miðjan daginn eftir að heimsóknir voru farnar og hún loksins búin með reikningsheimadæmin. Alex fór í gær til Ítalíu, þrátt fyrir kvef og læti en hefur það samkv. nýjustu heimildum ágætt.

Jæja nú fer að styttast í prufudaginn, ég er samt búin að ákveða að taka ekki þessari vinnu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters