Jólaþrif
og annað óþarfa fylgidót jólanna.
Ég ætla hér með að koma með mitt framtak til jólahreingerningarinnar. Þóra ég bíð þér í heimsókn til að fá útrás við að þrífa! Láttu bara vita hvenær ég á að sækja þig á flugvöllinn. Nei djók, var lélegur brandari. Ég var að ræða þetta við Lúlla og Gretu um daginn og það eru sumir sem gera jólahreingerningu. Ég geri bara venjulega hreingerningu og búið mál. Skúra, ryksuga og þurrka af. Ekki neitt skápavesen eða svoleiðis. Þeir sem sjá óhlut í skáp mega gjarnan grípa til tuskunnar en ekki minnast orð á það við mig, vinsamlegast. Ég er bara ekki týpan í að vera að þrífa í skápum. Hef aldrei verið, ég er meira týpan í að spila jólalög en að þrífa jólaskít. Hvað finnst ykkur? Er ekki bara yndislegt að skipta á rúmunum á þorláksmessu og vera búin að setja hitt í vél. Mér finnst leiðinlegt að þurfa að byrja á massa þvotti eftir jól þessvegna er ekki neitt mál að vera löngubúin að skipta á rúmunum og svona. Stundum er ofgert, eins og Lúlli sagði, ekki neitt að svona alsherjarhreingerningu en af hverju fyrir jólin? Góð spurning, svar óskast! Kemur kannski þá jólakötturinn og borðar foreldrana?
Bendi hér með á matseðil jólanna á blogginu hjá mömmu, kannski ætti hún að setja uppskriftirnar hjá? Hún er hvort sem er löngu búin að plana uppskriftarsíðu og byrjuð að nota hana! Góð ábending frá mér!
Ég er kannski eitthvað ýkt í skapinu núna en það er ekki útaf jólunum heldur útaf því að ég var í atvinnuviðtali í morgun í súpermarkaði hér rétt hjá, get fengið minijob 6,50 Evrur á tímann, tíu tímar í viku eða full vinna!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home