fimmtudagur, desember 02, 2004

Tónleikar frá tónlistaskólanum

Hæ hæ
Seinusta laugardag um kl.11 lá leið okkar á bókasafnið hér í bæ. Þar var barnabókahöfundur að lesa úr bókum sínum og krakkar úr tónlistarskólanum að spila jólalög á fiðlu. Tónleikarnir voru undir stjórn fiðlukennara Nínu sem er ung kona (stelpa eins og ég) sem er sennilega nýkomin úr námi. Krakkarnir voru 20 talsins, tveir á sellói og restina á fiðlu. Litlir og stórir krakkar allt í bland. Þau spiluðu þrjú lög. Við vorum spennt að heyra því þetta voru örugglega krakkar sem voru búin að vera lengur en hálft ár í tónlistarnámi.

Ég ætla að koma því að að mér finnst frábært að krakkar séu látnir spila fyrir framan áhorfendur og það er nauðsynlegt í tónlistarnámi að mínu mati að venjast því að koma fram. Amk. fyrsta lagið sem þau spiluðu var allt í lagi að hlusta á, en það var líka eina lagið sem með góðu móti var hægt að hlusta á. Maður heyrði í síðasta laginu, ekki einu sinni laglínuna, ég gat ekki fyrir nokkra muni áttað mig á því hvaða lag þetta var. Tónarnir voru ískurlegir (ég veit mjög vel að það er erfitt að ná góðum tóni á fiðlu) en hvernig væri að gera eins og á Íslandi, tveir spila og einn spilar undir á píanó, eitthvað stutt lag sem krakkarnir ráða við. Því krakkarnir sem standa fyrir framan hóp af áhorfendum gera sér alveg grein fyrir að það er ekki í lagi með það þegar lögin eru svona óæfð eða eitthvað. Mjög áberandi var að nokkrir voru að spila eitthvað allt annað, ekki einu sinni þá tóna sem hinir spiluðu og það passaði ekki. Kennarinn gerði sér eflaust grein fyrir þessu en of seint, þegar krakkarnir voru búnir að segja frá heima og farnir að hlakka til. En að samhæfa 18 fiðlur og 2 Celló, nei ég sver það. Hvað finnst ykkur? SKiptir megin máli að sem flestir séu með eða eru það gæðin sem skipta máli?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters