fimmtudagur, desember 09, 2004

Uppeldi

Það er nú meira hvað sjónvarpið er farið að bjóða upp á ómg. Allt frá lélegum sápum, upp í góðar myndir allt í lagi með það en þetta reality sjów bissness er nú meira dæmið. Hér er núna búið að vera í nokkur skipti Super Nanny, semsagt uppeldisfræðingur sem fer inn á heimili þar sem fólk hefur sótt um að koma í þáttunum til að vinna á uppeldislega erfiðum krökkum, aðstæðum og umhverfi svo eitthvað sé nefnt. Það er ekki nóg með það að foreldrarnir eru oft á sama þroskastigi og krakkar sínir, sem eru oftast fjórir plús hundur, eiginmaður sem tekur ekki þátt í uppeldi og heimili í RÚEST. Ég sver það. Mér blöskraði þegar ég horfði á þáttinn í fyrsta sinn og í gær náði ég bara endinum en ég hef ekki samvisku í að horfa á svona þannig að ég ætla að láta það eiga sig hér eftir. En málið er semsagt að foreldrarnir öskra á börn sín, (eðlilegur umgangstón er ekki til), ef krakkarnir slá til foreldra þá slá foreldrar (lemja) tilbaka og The Nanny stendur hjá og segir við mömmuna, segðu nú við barnið að það eigi ekki að lemja, mamman segir við barnið ekki lemja, segðu nú við barnið að það eigi að fara á rólega stólinn í þrjár mínútur og mamman apar það eftir, svona gengur þetta. Á sennilega að vera atferlismótun fyrir foreldra til að vera hæfir sínu hlutverki. Eitt það fyrsta verk sem Nanny hefur er að fjölskyldan borði við eldhúsborð á matmálstímum, SAMAN. Já því það kemur upp á daginn að fólk er að borða þegar það er svangt, helst sælgæti og það jafnvel rétt fyrir mat, svo er bara setið í stofunni í sófanum og horft á sjónvarpið..... Ég meina hvernig getur móðir með fjögur börn staðið í þessu. Ég segi ykkur það, uppeldi er spurning um reglur og skv. Nanny, gula og rauða spjaldið, það má gefa gula spjaldið en ef barnið hlýðir ekki fær það rauða spjaldið og þarf að fara á rólega stólinn eða í herbergi sitt í 3 mín ef barnið er ungt en 5 mín frá 7 ára! Sem betur fer gengur þetta allt hjá okkur, innan eðlilegra marka en ég mundi hvort eð er ekki opinbera mig svona fyrir almúganum í sjónvarpinu.

Allt er best í hófi....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters