Hefðir
Það er nú alltaf ákveðin hefð sem fylgjir jólum á heimili hverju. Sumstaðar er hefðin sterkari en á öðrum heimilum er farið lauslega eftir hefðum og siðum. Ég kýs að hafa jólin frekar íslensk en þýsk þar sem mjög mikill lausagangur er á jólunum hér! Kannski í raun ekki svo slæmt en ég kýs að halda í mína barnslegu hefð. Borða fínan mat, klæða sig fínt, bíða til kl.18 á aðfangadag og hafa hátíðarbrag yfir öllu. Ég hugsa að flestir Íslendingar hugsi svona til jólanna. Mér finnst það æði.
Hér er þessu ýmist háttað. Sumir eru með Bratwurst og kartöflusalat á aðfangadag, kjúklingasúpu, fisk, Raclett eða fína steik eins og gæs eða slíkt. Á meðan aðrir eru bara með brauð. Sumir opna pakkana áður en þeir borða, sérstaklega ef þeir eiga lítil börn sem bíða óþreyjufull eftir að fá að opna pakkana. Á sumum heimilum hér er það jesúbarnið eða Christkind sem kemur með gjafirnar og þá er jafnan enginn miði á gjöfunum þannig að barnið eða foreldrar þess vita ekki frá hverjum pakkinn er. Pökkum viðkomandi er svo öllum hrúgað saman og allir opna í einu sína pakka. Hver pakkinn er rifinn upp á fætur öðrum og svo eftir hálftíma er gjafastand búið og þá er hægt að fara að borða. Mér fannst þetta með eindæmum sérstakt fyrst þegar ég heyrði af þessu. Ég upplifði þetta líka einu sinni hjá tengdamömmu, þegar ég var ólétt af Nínu. Mér finnst þetta leiðinleg hefð. Þegar börn vita ekki frá hverjum gjafirnar eru þá þakka þeir að öllu jafna ekki fyrir sig, finnst ykkur það ekki svakalegt?


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home