Síðasta aðventan fyrir þessi jól
Í dag á að kveikja á Englakertinu, krúttlegt, eins og byrjun á ræðu í kirkjunni. Ohh talandi um kirkju, það er búið að vera þannig undanfarna sunnudaga að við höfum ætlað að kíkja í barnaguðsþjónustu í kaþólskri kirkju hér rétt hjá en ALLTAF SOFIÐ yfir okkur. Við erum nú meiri slugsararnir. Þannig að það var ekki neitt um sinnlegar hugsanir í dag. Því miður. Mér finnst mikilvægt að börnum sé kennt að fara í kirju og að hugsa um trúnna. Ekki að ég hafi verið sérlega trúarlega uppalin. Það var þannig hjá mér ætli ég hafi ekki verið um tíu ára þegar ég frétti að það kostaði ekki í messu!!! Þannig að ég dreif mig, það voru ég, afi stundum og Guðrún.... Og presturinn auðvitað. Þegar við áttum svo heima í vesturbænum fórum við reglulega í sunnudags barnamessu með Nínu, það var gaman. En við höfum ekki fundið réttu kirjuna hér úti þannig að það fer lítið fyrir messugöngum hjá okkur. Það er bara svo fyndið að núna er Nína í kaþólskri trúarbragðafræði í skólanum og það er nú aldeilis munur á því og íslensku heiðevangelíunni, ef þið skiljið hvað ég meina.
Nóg af trúarlegum málum, ég bið að heilsa í bili og þakka góðar undirtektir varðandi gestabókina mína.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home