laugardagur, janúar 29, 2005

Íslenskar konur

Í dag var fundur hjá íslensku konunum sem búa í nágrenni mínu, ég fór!!! Það var gaman að hitta konur sem eiga heima í Þýskalandi. Það er svo skrýtið að það er nánast hver það er sem maður hittir en manni finnst alltaf mjög gaman að hitta Íslendinga þegar maður er búsettur í Þýskalandi. Það er sérstakt finnst manni að hitta samlanda sinn! En er það sérstakt? Nú eru Íslendingar út um alla veröld þrátt fyrir að vera einungis um 290.000 á Íslandinu sjálfu. Sérstök staðreynd finnst mér.

Það var rætt um daginn og veginn, aðallega tilfinningar og upplifun af því að búa hér og samanburður við að búa annarsstaðar var rætt sem og hve munurinn á milli Íslands og Íslendinga og Þýskalands og Þjóðverja er. Já hann er lítill en þegar maður hefur búið í einu samfélaginu er ekki auðvelt að skipta yfir. Þótt maður sé alltaf að manni finnist Íslendingur í sér.

Ég er amk mjög glöð að hafa farið og fer pottþétt aftur! Eftir þennan hitting þá fórum við litla fjölskyldan út að borða á Burghof sem gerir yndælis nautasteikur og við höfðum gaman af því að gera okkur glaðan dag saman. En nú er ég að fara að horfa á Disclosure með M.Douglas og D.Moore sem verður örugglega gaman svo ég bið ykkur vel að lifa og hafa góðan sloppadag á morgun eins og ég ætla að gera......

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters