Vinnaaaaaa
Já það er satt, ég er komin með vinnu. Ég er búin að bíða lengi eftir þessari stund og eftir að hafa sætt mig við þá staðreynd að ég fái ekki aðra vinnu frá 8-12 þá fékk ég vinnu í heimahjúkruninni. Þetta er fjölskyldufyrirtæki og hefur 17 starfsmenn að telja, engan í fullri stöðu. Unnið er daglega frá 8-12 og helgarvinna í tveggjavikna takti. Launin eru 13,5 Evrur á tímann og maður er með 35 daga í sumarfrí (mv 6 daga vinnuviku). Hver starfsmaður á sína föstu skjólstæðinga sem reynt er að halda nema þegar kvöldvaktir eru. Kvöldvakt er þriðju eða fjórðu hverju viku og þá alla vikuna. Mikið er laggt upp úr góðum starfsanda og reyna starfsmenn að hittast einu sinni á sumrin í grillpartý, einu sinni í kring um jól í jólamat og einu sinni að vori er reynt að fara á sýningu, leikrit eða musikal. Rapport eru á fimmtud. aðra hverja viku í klukkutíma.
Ég er ánægð með að hafa fengið vinnu, ég er samt með blendnar tilfinningar varðandi það að fara aftur að gera það sem ég var ekki svo ánægð í áður. Ég er bara búin að sjá það að ég fæ ekki neitt annað mannsæmandi hér í Þýskalandi og ég verð að gera það besta úr þessu á meðan við erum hér úti. Ég er nú líka í þessu námi sem hefur mjög góð áhrif á mig og það hljóta að vera skemmtilegir samstarfsfélagar sem ég kynnist útfrá vinnunni og það er svona það sem ég sé jákvætt við það að fara að vinna. Reyndar er Alex líka mikið í burtu en við hljótum að ráða úr þeim aðþrengingum sem upp eiga eftir að koma þegar að því kemur.
Ég byrja 1.febrúar og verð fyrst í aðlögun, hann leggur mikið upp úr góðri aðlögun áður en maður fer að vinna sjálfstætt og þá er gaman að kynnast samstarfsfólki sínu.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home