Blogg, blogg, blogg
Það er eins gott að ég er komin í frí í vinnunni! ÉG geri ekki annað en að vera á netinu þessa dagana. Búa til blogg, blogga, blogga, bæta inn nöfnunum þeirra sem ætla að mæta á árgangsmótið á árgangsmótabloggið og margt fleira. SVo er allt í stressi útaf árgangsmótinu, koma bréfi út sem fyrst, gera uppkast að þessu bréfi, reyna að koma saman skemmtilegri dagskrá! Sem er ekki auðvelt að mínu mati. Bara vera með nógu mikið á prógramminu, en það verður að vera við hæfi. Við ætlum að láta húsið opna kl.18 og matinn byrja 19. Svo er verið að undirbúa smotterí í sambandi við video og alls kyns þannig dót en það býður sig enginn fram. Hvernig er það verður maður að tala beint við fólk, er ekki hægt að biðja áhugasama að bjóða sig fram? Er enginn áhugi? Ég skil þetta ekki alveg. En ég er ánægð með góða mætingu, talsvert fleiri sem stefna á að mæta í þetta sinn miðað við seinast.
Skemmtilegt að hugsa svona mikið um þessa gömlu daga! Spennan magnast! Ein hress úr árgangnum sem ég hitti á msn sagðist vera að fara á límingunum af spenningi!!! Eins gott að það gerist ekki neitt með þessar límingar!!!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home