laugardagur, apríl 16, 2005

Hún er tíu ára í dag, hún á afmæli, hún Nína, hún á afmæli í dag

húrrahh, húrrahh, húrrahhh

Hún Nína er tíu ára í dag, ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið hratt, hún er orðin tíu en ég hef bara elst um tvö ár.... hvernig gengur það?

Hún var svo spennt í morgun og það var svo gaman að opna pakkana og hafa kerti á borðinu, fá runstykki í morgunmat og láta syngja fyrir sig afmælissönginn (foreldrarnir og gítar) að það er æðislegt að eiga afmæli. Einstök upplifun. Nú er verið að baka og taka til og kl.14:30 byrjar afmælið.

Til hamingju elsku Nína.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters