föstudagur, apríl 15, 2005

Matarboð vinnunnar, Alex kominn og Reynigrundin

Hæ hæ, það er meira hvað það er gott veður í dag! Á morgun á svo að fara að rigna, ótrúlega óréttlátt, ákkúrat þegar afmælið hennar Nínu er, ratleikur og allt. Það verður gaman að fylgjast með þessu.

Haldiði að okkur, starfsmönnum vinnunnar hafi ekki verið boðið út að borða af vinnunni, með drykk og alles. Það var á kínverskum veitingastað, hlaðborð af forréttum, svo var hægt að raða sjálfur á disk og það var steikt fyrir mann á meðan maður beið við svona glerborð. Svo var hlaðborð með eftirréttunum. Það var bara mjög gott, ég fékk með rauðvín og alles bara borgað fyrir mann. Svona mætti vera oftar.... hehehehe

Já og Alex er kominn, hann var nú bara þrjá daga í burtu í þetta sinn, í Leipzig. Svaka stutt, maður er orðinn svo sjóaður í þessu núna, gerir ekki neitt til að hann sé að fara þetta af og til. Hressilegt fyrir sambandið, alltaf gaman að hittast aftur, spennan að magnast og svona, hringjast á og skrifa sms, sem hann gerir reyndar ekki sérlega oft en samt.

Heyrðu, þetta með Reynigrundina ætlar engann enda að taka, ég fékk bréf frá sýslumanni í gær að það ætti að selja hana á nauðungarútboði. Alveg er þetta óþolandi, ég kalla mömmu góða að vera svona kærulaus yfir þessu. En hún er bara svo þakklát fyrir líf sitt eftir miklu veikindin hennar að svona það kemur ekki nálægt henni. En ég vona að þetta fari að taka einhvern enda. Lokauppboð verður 10.maí, gat nú ekki verið skemmtilegri dagur en AFMÆLISDAGURINN MINN. En þið getið fylgst með þessu hjá mömmu, á www.siggaola.blogspot.com

Ég er að fara í skólann á eftir til Munster, bið að heilsa ykkur...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters