Komin heim í Heiðardalinn
Hæ hæ kæru vinir,
Ég er komin heil á húfi til Íslands og verð þar næstu daga. Heimflug er á sunnudagsmorgun en þá flýg ég á Amsterdam og minn heittelskaði eiginmaður kemur að sækja mig á flugvöllinn.
Í kvöld var svaka veisla að halda uppá uppgjörið af húsinu hennar mömmu. Já í alvöru, hún fékk loksins restina af peningunum og er núna hamingjusöm kona. Sem hún var reyndar áður líka en auðvitað lætur svona nokkuð mann ekki ósnortinn. Við gáfum mömmu líka afmælisgjöfina sem var digital myndavél og hún var rosa ánægð með það. Ég vona bar að hún verði dugleg að setja myndir á netið. Við opnuðum freyðivín og skáluðum yfir þessu öllu saman og það var mjög gaman að hitta fjölskylduna.
Við fórum út að borða í tilefni dagsins á Madonnu og ég fékk mér calsone með hvítlauk og sveppum auka og er núna að kafna úr hvítlaukslykt af sjálfri mér..... Vonandi verða hjúkkurnar ekki fúlar á morgun útaf andfnyk....
'oli bróðir minn, Rokkarin´n á afmæli á morgun og ég óska honum núþegar innilega til hamingju með sín 27 ár, sem óhætt er að segja að hann beri ekki framan á sér.... Ég óska honum innilega til hamingju og megi hann lifa lengi og vera hamingjusamur með sín hljóðfæri og sitt nám og sínar ákvarðanir, hamingjusamar stundir með syni sínum, Hlyni, fjölskyldu sinni og vinum. Megi hann lengi lifa húrraaahhh húrraahhh húrrraahhh.....
Við ætlum aftur út að borða á morgun, halda upp á afmæli hans, á Rauðará, gestum og gangandi er hjartanlega boðið að óska afmælisbarninu til hamingju á staðnum frá 19-22 en þá verðum við sennilega þar. Svo er um að gera að senda sms en númerið hans er örugglega í símaskránni....


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home