laugardagur, nóvember 26, 2005

Neyðarástand

Í Munsterland en það er svæðið þar sem við búum. Það er búið að snjóa í rúma tvo sólarhringa nánast viðstöðulaust. Í dag fór rafmagnið af í mörgum bæjum, líka hjá okkur. Þetta var í fyrsta sinn sem Alex upplifir rafmagnsleysi í Þýskalandi bara svona til að lýsa því hve sjaldgæft þetta er. Allar götur voru ófærar og lítið rutt, það sem rutt var, snjóaði fljótt aftur þannig að það var ill ökufært. Mikið vandamál skapaðist í lestar og samgöngumálum eins og strætó, allt stopp. Vandi var ekki bara snjórinn sem kom í stríðum straumum heldur líka greinar af trjám og heilu trén sem gáfu sig vegna þunga snjósins. Algjört neyðarástand er búið að vera í nokkrum litlum bæjum nú í tvo daga, tvo daga án rafmagns, það þýðir að það er engin hiti í húsunum, já það er allt í sama batteríinu, það er ekki hægt að elda og fólk er búið að búa um sig í skólum og veitingarhúsum þar sem boðið er upp á heita drykki og heitt húsnæði. Fólk er alveg að niðurlútum komið, það þekkir ekki þessa aðstöðu. Það snjóar kannski alveg hér en ekki meira en svo að það er hægt að sópa snjónum í burtu..... Nú er amk hálfur metri af þykkum snjó út um allt.

Hinn dæmigerði Þjóðverji lendir ekki oft í þessari aðstöðu að þurfa að keyra í hálku, snjó og að festa sig. Mynduðust víða hópar af nágrönnum sem höfðu gaman af því að ýta bílum sem voru búnir að festa sig og virtist fara vel á þeim. Alex var rosalega duglegur að setja loksins vetrar dekkin undir, að framan n.b.! En það á víst að duga. Mikið vandamál hér í umferðinni er það að það kunna fáir að keyra í hálku. Þeir gefa bensínið í botn og skilja svo ekki neitt í því að bíllinn geri ekki eins og þeir vilja, HAHAHAHAHA. Við grenjuðum úr hlátri í dag þegar við litum út um gluggann og sáum Jósep nágranna okkar spóla og spóla og komast ekki fetið áfram!!!!! Auðvitað nokkuð þreytandi ef maður er fyrir aftan svona einstaklinga.

Ég var í vinnunni í morgun og var í miklum vandræðum með að leggja bílnum í götum sem ekki var búið að ryðja mynduðust göng með hálfs metra háum hliðum. Ég gekk því ófáa metrana til sjúklinganna í morgun. Rafmagnið fór líka af þannig að ég gat ekki hækkað í rúmunum og þurfti að beygja mig yfir sjúklingana við þvottinn, slæmt fyrir bakið!!! En dagurinn var ekki lengi að líða og ég vona að morgundagurinn verði skárri....

snjókveðjur til ykkar og góða helgi

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...


Hér nær snjórinn kannski tommu, samt er búið að vera brjálað rok og leiðinda veður á íslenskum mælikvarða. Ykkur er velkomið að koma hingað í hlýjuna því við höfum rafmagnið.
Kveðja, Bjarnhildur og Heiðar

10:09 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir gott boð en að standa í bílaröð, allt að 45 km, á hraðbrautinni. Nei takk.... eins og er er rafmagnið jú hjá okkur, annars hefði ég ekki getað bloggað, híhíhí.... Nínu finnst þetta mjög gaman og Alex er ánægður með að geta loks notað klofveiðistígvélin sín á nýtilegan hátt!!!

Á Ísl. mælikvarða er veðrið nú ekki svo slæmt, svona í alvöru....
Baráttukveðjur, Helga

10:42 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Komdu bara til Íslands,, enginn snjór í Reykjavík (í dag) heitt og hlýtt í mínu húsi,, og nóg að borða. Vona að allt gangi vel hjá ykkur, sá myndir frá Dusseldorf, gott að við vorum þar fyrir viku ! Baráttukveðjur í vetrarhörkunni Gunna

1:15 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir það Gunna mín, kannski maður taki þig á orðinu....
Kveðja
Helga

1:32 e.h.  
Blogger Helga said...

Það þarf oft ekki mikið til að fá mann til að hlægja, en það er í alvöru ekki fyndið því svo brýtur blessað fólkið í sér öll bein, nei segi nú bara svona.

7:44 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters