mánudagur, febrúar 27, 2006

Bolla bolla

Það er bolludagur í dag. Það þarf sennilega ekki að segja neinum á Íslandi það. Bakaríin full af bollum, krakkarnir með bollu í nesti í skólanum og verið að baka bollur í heimilisfræði. Það er ekki til bolludagur hér í Þýskalandi. Ég ætla samt að baka vatnsdeigsbollur í dag og njóta þess að fá mér eina eða tvær í faðmi fjölskyldunnar þegar Alex kemur úr vinnunni. Læ hér fljóta eina ágæta uppskrift fyrir þá sem vilja reyna fyrir sér í vatnsdeigsbakstrinum.

Vatnsdeigsbollur:
125g Smjörlíki
2,5 dl vatn
125 g hveiti (þarf aðeins meira)
4 egg
Mælið og vigtið mjög nákvæmlega, setjir smjörlíki og vatn í pott og látið suðuna koma upp. Hellið hveitinu í, hrærið vel saman svo að degið safnist um sleifina. Takið pottinn af hitanum og kælið. Hrista eggin saman og bæta þeim smátt og smátt út í degið og hræra vel. Degið á að vera svo þykkt að það haldið lögun þegar því er sleppt úr skeið. Látið það með skeið á bökunarplötu (má líka sprauta því í toppa). Bakið við 200 gráður í 20-30-40 mín en athugið að það má ekki opna ofninn til að kíkja á bollurnar því þá falla þær saman!!!!!! Í ALVÖRU ÞAÐ GERIST.

Svo bara setja glassúr eða súkkulaði ofan á bolluna, þeyta rjóma setja smá jarðaberjamarmelaði útí og skella einni slettu á milli. Bíða aðeins, nei nei það má alveg borða strax.... nammi, nammi, nammi.....

Óli bróðir minn var að útskrifast úr háskólanum á laugardaginn, hann er núna uppeldis-og menntunarfræðingur B.a. og er í mastersnámi. Það var kaffiboð á Akranesi og þangað mætti stórhluti af ættinni til að fagna með honum og fjölskyldunni. Til lukku með þetta Óli minn. Stella var líka að útskrifast, hún er í hjúkkuhópnum mínum og hún var að klára ljósmóðurfræði, til hamingju Stella mín.

Við vorum með fullt hús af gestum um helgina, það var gaman. Bróðir Alex, hann MAtthias sem var veislustjóri í brúðkaupinu okkar var með eiginkonu sinni og tveimur dætrum. Við skelltum okkur til Munster á laugardeginum, hvað annað, og áttum mjög gó-ðan dag þar. Það var ískalt en svo fallegt veður. Á sunnudeginum fóru krakkarnir í sirkus og við fullorðna fólkið skelltum okkur í ísbúðina, í 2 stiga hita...... maður er ekki í lagi. Okkur varð bara svo mikið um þegar mamma sagði að það væri 16 stiga hiti á Íslandi.......

8 Comments:

Blogger Rokkarinn said...

Takk fyrir Helga mín :)
Bestu kveðjur út,
Óli Örn Atlason
uppeldis- og menntunarfræðingur

12:40 e.h.  
Blogger Helga said...

leiðréttist hérmeð.....
biðst fyrirgefningar

12:54 e.h.  
Blogger Sigga said...

Ég held að mamma þín hafi nú aðeins verið að ýkja með 16 stiga hita. En það var mjög gott veður á laugard. Rigndi svo alveg svakalga á sunnud. Amk í Grafarvoginum.

1:11 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég nota sömu bollu uppskrift og þú, en ég borða aldrei 1-2 bollur eins og þú, ég geri 3falda uppskrift og það borðar enginn færri en 10 bollur :) og svo fá gestir og gangandi smá líka :)
kv Systa

8:34 e.h.  
Blogger Helga said...

Þetta með þennan hita á Íslandi var einhverstaðar fyrir austan? Eða amk ekki á Akranesi eða vesturlandi.

Já ég borðaði nú meira en tvær bollur, ég mundi það samt eftir að hafa sett uppskriftina á netið að ég set hnífsodd af salti líka. En þær voru svo gómsætar þessar litlu dúllur, híhí.

7:57 f.h.  
Blogger Gunnur said...

Þvílíkur myndaskapur alltaf í þér!
Læt nægja að lesa uppskriftina þína og rölti svo út í bakarí... :-)

12:05 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Eitthvað verður maður nú að hafa fyrir stafni sem heimavinnandi húsmóðir með 10 ára stúlku og að læra í hjáverkum.

Ég hefði nú aldrei getað keypt vatnsdeigsbollur hér úti í bakarí, okei berlínarbollur er hægt að fá allt árið en engar rjómabollur.

kveðja
Helga

9:11 e.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Jú hitinn var fyrir austan (16 stigin)og 15 stig á Siglufirði, ótrúlegt!!

Ég sé að bolludagurinn hefur verið tekinn með trompi hjá ykkur, frábært :)
Það er verst að þið hafið líklega ekki haft saltkjöt og baunir í gær uuuummmm, nammi, nammi, namm.

Bestu kveðjur

7:31 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters