Bankalán
Það virðist sem markaðurinn hjá bönkum á Íslandi og reyndar víðar sé að springa. Það er svo mikið góðæri, enginn vill láta það fram hjá sér fara og lántaka mjög mikil. En lán er ekki bara lán. Það er að mörgu að hugsa og eins gott að fara varlega í þau mál. Einn vinur okkar á Íslandi ráðlagði okkur meira segja að fara í nokkra banka og athuga hvar væru bestu kjörin fyrir okkur! Bara láta gera okkur tilboð væri nánast hægt að segja. Svo er það nú þannig að þegar maður byggir fær maður húsnæðislán ekki fyrr en húsið er fokhelt og búið að taka það út. Þar til lánið er veitt notar maður yfirdráttarheimild með allt að 25% vöxtum!!! Vinurinn sagði að það borgaði sig frekar að gera nákvæma áætlun (sem maður er vissulega búin að gera) og fá bara lán hjá bönkum, það væru jafnvel betri kjör sem maður fengi. Bankarnir væru orðnir völdugir á fasteignamarkaði á Íslandi og meira segja á leigumarkaði líka.
Þannig að þið sjáið lesendur góðir að það er að ýmsu að huga áður en við leggjum í hann.


9 Comments:
Um að gera að kynna sér þetta allt vel og vandlega.... og lesa smáaletrið :)
Æðislegar nýju myndirnar!!
það er sko alveg rétt hjá þér, smáaletrið!!! Já nýjar myndir á barnalandi!!!
kv.Helga
Nú eru margir hér á Íslandi að breyta sínum lánum í erlenda mynt til að losna undan þessari óðaverðbólgu hér. Þið ættuð að skoða það líka.
Úff það er greinilega að mörgu að huga... það er gott að hafa vit á svona löguðu...þetta hefur aldrei verið mín sterkasta hlið.
gangi ykkur vel!!! ;o)
Já þeir voru að fjalla um þetta í fréttunum um daginn og tóku dæmi af láni hjá fjölskyldu. Ef hún hefði tekið lán í evrum þá væri hún búin að borga fjórar milljónir af láninu og vextir í lágmarki. Ef hún hefði tekið lán í íslenskum krónum þá væri fjölskyldan búin að borga 2 milljónir í vexti og nánast ekkert af láninu... Ef við tökum þetta fyrir fyrstu tvö árin.
Þetta er svona fáránlegt!!! Þið ættuð kannski að skoða þetta vandlega :)
B.kv. Þóra
Evru-lán Íslenskt lán
Lánsfjárhæð 15.000.000 15.000.000.
Meðalgreiðsla næstu 12 mánuði 68.321 kr. 75.092 kr.
Meðalgreiðsla yfir allan lánstímann 50.040 kr. 154.547 kr.
Vextir og verðbætur 9.018.990 kr. 59.184.215 kr.
Samtals greitt: 24.018.990 kr. 74.184.215 kr.
Evru upphæðin er alltaf fyrst!
Kv. Þóra
Já nýju myndirnar eru mjög fínar. Balthasar er orðinn svo mannalegur :)
Flott hjá þér Þóra að koma með þessar upplýsingar, ég heyrði þetta einmitt í útvarpinu í jólafríinu.
Vonandi er Nínu að batna í litlafingri!
Bestu kveðjur
Já þetta eru áhugaverðar upplýsingar ´Þóra, ég var einmitt búin að heyra af þessu með lán í erlendri mynt, í fyrsta sinn hjá Þresti bankastjóra um páskana í fyrra...
Nína er ekki brotin en brákuð og með sárabindi og líður bara bærilega í dag.
kv.Helga í brjáluðu veðri, stormviðvörun, rigning og alles...
Vá það er enginn smá munur á láni teknum í íslenskum krónum en í evrum.
Er kominn einhver tímasetning á ykkur hvenær þið flytjið?
kveðja
Christel
Skrifa ummæli
<< Home