föstudagur, febrúar 06, 2004

Þá er maður búinn að taka það helsta til sem á að fara í ferðatöskuna með til Hamborgar og nú ætla ég að fá mér einn jólaöl, já það er einn jólabjór eftir og þar sem enginn drekkur hann á heimilinu nema ég þá er hann búinn að bíða lengi eftir sinni stundu. Já svo er bara að leggja sig og sofa nóg fyrir djammið á morgun. Það er eins gott að það sé ferðarfært fyrir stormi og rigningu, já og snjó, þetta er nú alveg með endæmum þetta blessaða verður hér, það mætti halda að maður væri á suðvesturhorninu á Íslandi. Einn daginn sól og 18 stig og þann næsta, nei ekki orð um það meir.

Ég var að sækja Alex fyrir stuttu á lestarstöðina þar sem hann kom loksins til okkar og sendi hann beint að gera eitthvað upp við fólkið sem leigir okkur. Ég sendi hann alltaf í svona óþægilegar samræður, þessi elska hann er svo góður að gera þetta fyrir mig. Það verður nú gaman að knúsa hann svolítið um helgina, bara leiðinlegt fyrir Nínu að missa alveg af honum... En Nína er samt voða spennt að fara í heimsókn til Höxter Íslendingana, en það kemur ekki neitt í staðinn fyrir smá fíflalæti með pabba gamla.

Jæja ég óska öllum góðrar helgar, látum veðrið ekki hafa áhrif á góða skapið okkar,,,, :-)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters