Bolla, Bolla, bolla, bolla, bolla.........
ÚÚffff, tengdafólkið er farið. Já það var nú gott að hafa þau en það er svoleiðis að þegar gestir svo fara er maður þakklátur fyrir sínar hljóðu stundir á sófanum sem maður var farinn að sakna. Svona er ég einfaldur persónuleiki. En nóg um það. Mér finnst alltaf mjög mikilvægt að rækta fjölskylduna og ég er algjörlega á því máli að það er dýrmæt gjöf að eiga fjölskyldu. Ég hef verið einstaklega heppin með mína fjölskyldu (þetta er nú eiginlega "orðatiltæki" mömmu, sorry mamma ég fæ það lánað), það hefur á ýmsu borið okkar daga en við höfum öll komist heil í gegnum það og það eru sumir sem þurfa að þola meira en aðrir. En einhverntíma sagði einhver að það er bara lagt á mann sem maður ræður við. Oft efast maður nú um að maður komist í gegnum erfiðleika en svo einhvern veginn tekst manni það. Auðvitað getur maður ekki gengið í gegn um allt einn þess vegna er mikilvægt að eiga góða fjölskyldu að og góða vini. En við verðum að rækta öll sambönd, mismikið, hjá sumum er eins og maður hafi hisst í gær þrátt fyrir að maður hafi lengi lengi ekki neitt eða lítið samband.
Við Nína vorum að koma frá McDonalds, þetta er orðin svo mikill letivani í okkur mæðgum. Tvær að brasa eitthvað í matinn og svona og á mánudögum er Nína í sundi til kl.18:00 og þá erum við svo latar, þreyttar og bara þetta týpíska, æi förum bara á md. Já og nú er hægt að fá sjeik í staðinn fyrir drykk og mayones með frönskum sem fylgir með. ÞEir eru svaka góðir í pólítík sinni eins og þeir eru miklir náttúrumengunarvaldar skv.nýustu heimildum.
Það var Karnival í skólanum í dag. Þá mæta krakkarnir í búningum og með eitthvað til að setja á þesskonar hlaðborð. Sumir komu með heimabakaða köku, snakk eða eitthvað þesslíkt. Nína fór með vatnsdeigsbollur, keyptar með rjómalegrivanillublöndu inní, svaka mikið nammigott. Og það kláraðist strax.... Það er alltaf gaman þegar hlutir klárast og engar restar eru sem fylla iðulega ískápinn minn. Eins og í gær í bolludagskaffinu þegar vinir okkar Lúlli, Greta, Kiddi og Bjarki komu þá kláruðust bollurnar, það voru lengi bara tvær eftir þegar allir voru búnir en svo í miðju Wizard spilinu (ég varð jú að spila það með þeim eins og með öllum öðrum sem koma í heimsókn) þá gripu drengirnir til bollanna. Meðan við fullorðnafólkið vorum að drekka kaffi og kahlúa og Lúlli Tiger koniak(það var ein lítil eftir sem þú gafst mér einhverntímann mamma). En það var gaman að hittast aftur og spjalla um allt og ekkert. Nína fór í afmæli til bekkjarsystur sinnar þannig að hún var bara stutt heima. Það hittir stundum þannig á að það er allt á sama tíma.
Óli, ég fékk sokkana í dag, helduru að það sé, stærð 46-48 er það ekki rétt....
Jæja dúllurnar mínar, góða nótt og dreymi ykkur vel, ykkar.....
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
mánudagur, febrúar 23, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home