mánudagur, febrúar 16, 2004

Þá er enn aftur helgin búin. Já og Alex farin í þrjár vikur í þetta sinn. Þetta er nú ekki fyndið. En hann er að fara að setja upp í sýningu í Genf. Þannig að þá er bara að vera dugleg að pakka á meðan hann er ekki heima. Eveline og Jan ætla að koma á miðv. og vera fram á sunnudag en það er fínt þá er Nína ekki ein um helgina meðan ég er að vinna. Við töluðum svolítið saman á föstud. eftir að hafa farið á Diele að borða í tilefni dagsins, já einkunnagjöf, gaman gaman. Nema hvað að Nína sagði að hún væri svo hrædd um að við mundum deyja þegar hún er ein heima. Já það er alls konar sem maður hugsar þegar maður er heima hjá sér aleinn heilu og hálfu dagana. En við töluðum auðvitað bara saman um þetta og hún hringir þá bara í gsm og málið reddast, en það er ekki alltaf hægt að ná í mig í gsm ef það er lélegt samband og svona, ég sagði að hún ætti þá bara að hringja áfram, í pabba, Pirjo og Martin og svo áfram þar til einhver svarar.... Þetta líf, þetta líf....

Annars áttum við svo skemmtilega helgi. Já Nína fór ekki í skólann á föstud. en ég sótti einkunnirnar sem voru mjög fínar, bara einkunin 2 nema í leikfimi, listgreinum og trúarbr.fr. þar var hún með þrjá. Frábært. Við fórum út að borða sama og á laugard. þá fórum við á opið hús hjá skólanum sem Alex var í og þar hittum við tvo fyrrverandi samnemendur sem var mjög gaman. Svo var ég á kvöldvakt og eftir vinnu komu pirjo og martin í Wizard og drasl með snakki og rauðvíni, gaman gaman. En það er svo gaman um helgar hjá okkur þegar ég er ekki á morgunvakt því þá er svoooo góður morgunmatur hjá okkur. Alex færði mér svo rósir á valentínusardeginum svaka sætur þessi elska, þegar hann er heima, grát, grát..... Já og svo var bara helgin búin eftir að við vorum búin í heimsókn hjá Tobias og konunni hans sem er frá Chile, þau eiga fjögur börn, hann er þrjátíu ára,,,,, og hann er atvinnulaus og hún er heima hjá börnunum, getur einhver sagt mér hvernig svona er hægt en skv því sem hann segir koma börnin bara næstum af sjálfu sér hjá suður- Ameríkubúum... Sérstakt ekki satt, alls staðar annars staðar þarf maður að gera eitthvað til að börnin koma en svona er þetta...... Já þannig að það var ekki gaman að kveðja Alex klukkan 4:50 í morgun á lestarstöðinni en þrjár vikur verða vonandi ekki svo lengi að líða.

Afmælisbarn dagsins er Matthias Eck bróðir Alex, sá sem var veislustjóri í brullupinu okkar fyrir þá sem muna enn eftir því.
Bæ bæ í bili, ykkar Helga

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters