Jamm og jæja, tengdamamma og maðurinn hennar eru í heimsókn hjá okkur. Svaka lúxus, heitur matur í hádeginu (sem ég vanalega elda) er núna ekki eldaður af mér, að versla í matinn (sem ég er vön að gera) geri ég ekki. Nína hefur selskap á morgnana alveg þar til hún leggur af stað í skólann. Nína fer að versla playmóbíl (sem amma borgar) og Jan gengur frá eldhúsinu þegar við erum búin að drekka saman Espresso... Ljúft líf. Ég gæti alveg hugsað mér að hún væri næstu viku líka hjá okkur en þau vilja fara heim á sunnudaginn. Þau eru jú líka á fullu, í ellilífeyrisprógrammi. Fara til læknis, láta athuga með gleraugun, Jan er nýkominn með heyrnartæki og það þarf eitthvað að eiga við það. Eveline fer eins oft og hún getur að Wolking, svo eru þau mikið í 'Operum og á alls kyns samkomum... Gaman gaman að vera kominn á ellilífeyrisaldurinn og geta ferðast og notið þess að vera á lífi. Það skapaðist skemmtileg umræða hjá Heiðrúnu á commentunum hennar um hvernig það væri að vera á ellilífeyri og hvaða stuð þau ætla að hafa á Höfða. Ég væri hins vegar alveg til í að sleppa því að vera á Höfða ef líf og heilsa leyfir og vera meira á flakki, skoða mig um í heiminum, fara á kanarý í þrjá mánuði og svona. Auðvitað mundi ég líka vilja eiga samastað heima á Akranesi og það væri þá kannski í svona húsi hjá höfða eins og amma lilla á heima í. Þið eruð þá öll velkominn þegar þið eruð búin í hasspartý og þunn eftir áfengisneyslu þá helli ég upp á kaffi eða býð upp á grænt tee.. svaka bíólegt. Svo sá maður greinilega aldursmun á einum sem skrifaði komment, hann sagði ég get ekki ímyndað mér hlutina þegar ég verð gamall eða eitthvað álíka. Sniðugt. En þetta með hægðirnar, ég skal segja ykkur það að þetta er ekki neitt grín. Sumir fá þetta gjörsamlega á heilann, þótt það sé ekki neitt vandamál en þetta verður svona neurotiskt hjá vissri tegund manneskja..
Nóg um það. En bolludagur og öskudagur nálgast. Ég ætla að halda uppi hefð fjölskyldunnar, sem var í minni fjölskyldu að vera með bollukaffi á sunnudeginum fyrir bolludag og munu vinir okkar frá Íslandi sem eiga heima í höxter koma til okkar Nínu í bollukaffi. Því verð ég að fara að baka vatnsdeigsbollur en ef þið viljið þá get ég gefið ykkur uppskrift sem klikkar ekki....ala mamma..... Já hlakka til að fá bollu, hef í tvö ár ekki fengið eina einustu vatnsdeigsbollu. Hér fær maður á hverjum degi berlínar bollu en ekki þessar íslensku.... Já og á mánudaginn er skemmtun í skólanum hjá Nínu, hún ætlar að vera leopard.... sem hún var líka í fyrra og líkaði svona æðislega vel... Jæja látum þetta duga...ykkar Helga
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
föstudagur, febrúar 20, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home