föstudagur, apríl 30, 2004

Hey, frábært, helgin framundan. 25 Stig í dag og fyrsti maí á morgun. Allt frábært.
Nína er að fara í sund með vinkonum sínum í dag, þær eru sjö saman og ætla að fara einar. Vonandi gengur það vel og kemur ekki neitt fyrir.
Já við erum komin með tdsl og það er nú ekki svo mikill munur. Nema maður getur notað Webcam, við prufuðum það í gær og var frábært, hittum Atla, Óla og Mjöll og Silla. Svaka gaman að vera í leikriti og sýna sig. Ég farðaði mig auðvitað og við skáluðum í rauðvíni á meðan. Alveg svakaleg upplifun. Eins og það gerist aldrei neitt hjá okkur.

Mamma var að gera ljósmyndarsögu um ferðina okkar til Englands í fyrra í mars. SVaka flott getið séð það á bloggsíðunnien þar er hægt að linka á hana. Það er nú meira hvað hún móðir mín er tæknileg. Gaman af lífinu, það segir hún allta.

Nína er alltaf að kalla á mig núna, kondu, kondu, hún er svo svöng þessi elska. Ég held bara áfram á eftir, sjáumst þá.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters