Já ég stóð ekki við orð mín en SORRÝ, ég hef bara verið að gera annað. Ég er kannski eins og hver annar bloggari sem bloggar bara þegar hann hefur ekki neitt annað að gera. Já það er svosem skemmtileg tilhugsun. En ég á hvort eð er nóg að gera og reyni alltaf SAMT að blogga og kíkja á uppáhaldsbloggarana. En mér finnst AÐ ÞEIR SEM ERU AÐ KÍKJA EIGI AÐ SKRIFA KOMMENT, BARA SVO MAÐUR SJÁI HVAÐA ÁHEYRENDAHÓP EÐA LESENDAHÓP MAÐUR Á. MIKILVÆGT MÁL ÞEGAR MAÐUR ER SVONA LANGT FRÁ ÖLLUM SEM ERU AÐ LESA SVO ÉG FÁI TILFINNINGU FYRIR HLUTUNUM. EINS OG TILDÆMIS MEÐ HRÓLF, ÞETTA ER ÓSANNGJARNT. MIG LANGAR LÍKA AÐ VITA UM ÞIG HRÓLFUR OG MJÖLL, ÞÚ LÍKA MIG LANGAR AÐ VITA ÞEGAR MAÐUR TÉKKAR Á MANNI..... Kannski líka frekja í mér en þeir sem vita og þekkja hvernig mín hegðun er, alloftast þá vita þeir að ég hef mikinn áhuga á fólki sem ég þekki og mér þykir annt um að vita hvað er að gerast.
Skiljanlega vel ég út það sem ég vil setja hér. Hver setur tildæmis í bloggið sitt eitthvað sem veldur verulegum áhyggjum eða vangaveltum eða jafnvel sálarkrísu. Allt í lagi með svona daglegt brauð en fólk á í svo mörgu og kannski ætti maður bara að vera opnari með hlutina. Auðvitað er ég ekki að meina að maður eigi að ganga grátandi um götur bæjarins en sumir hverjir láta ekki neitt á neinu bera og svo allt í einu er allt í klessu. Ef maður hefði kannski verið opinn þá hefði einhver átt ráð fyrir mann eða jafnvel eyra og oft þarf ekki meira. En þetta rýmaði. Ég verð að viðurkenna að ég er ekki mjög góður penni. Veð úr einu í annað en það er betra en að segja ekki neitt finnst mér.
Núna ákkúrat fyrir stuttu voru Lú og Greta að fara með yndislegur drengina sína Bjarka og Kidda. Já það er sérkennilegt manni þykir bara svo vænt um þau, bara búin að kynnast fyrir ári eða eitthvað og virkilega náð svona vel saman. Auðvitað hafa þau hagnað í því að þekkja okkur..... ekki orð um það meir.... við minnumst til dæmis ekki á kennslustund í Ísbaði, Ouso drykkju, Aspas eldamennsku og hvað annað. En ég tel okkur hafa mun meiri hagnað af því að þekkja þau. Greta er nefninlega í nuddnámi og verður MAssage und Bademeisterin að ári liðnu og þá verður maður heppinn að hafa verið notaður í sveinsstykkinu..... Nei þetta er nú bara rugl í mér. Já en ég er ákaflega þakklát fyrir að hafa kynnst þeim. Jákvætt og yndislegt fólk sem er mjög spontant og ekki kröfumikil á það sem maður er að gera. Bara tekur öllu eins og það er..... Eins og ´flestir Íslendingar eru reyndar. Margir hverjir gleyma bara í öllum asanum að hugsa að eigin þörfum og á því verða Íslendingar að vinna á.
En þetta var mjög ljúf helgi. Við drukkum ekki mikið úsó og þess vegna gekk vel að drífa liðið á fætur í morgun og fara í fótbolta. Ég verð að viðurkenna að ég kom mér mjög á óvart þótt ég segi sjálf frá en ég var bara ekki sem verst í fótbolta, hefði ég bara æft þegar ég var yngri þá væri ég sennilega í atvinnumennsku núna. En Bjarki, Kiddi, Alex og Lú fóru í gær á BVB Dortmund á móti Hansa Rostock, leik í risastadioninu í Dortmund. Og þeir voru svo yfir sig hrifnir allir saman af þessu að þetta hlýtiur að hafa verið algjört uppilifelsi. GAman fyrir þá, við horfðum á video sem Alex tók og myndir alveg sérstaklega gaman að horfa á þessa maurahrúgu rúlla fram og til baka á svona litlum grasvelli, en stærðin er algjörlega ógreinileg.
Jæja elskurnar, ég er hætt í bili, við ætlum að skella okkur í göngutúr í góða veðrinu, enn um 20 stig og enn ekki byrjað að rigna...
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
sunnudagur, maí 02, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home