þriðjudagur, maí 04, 2004

Mig langaði að segja ykkur frá því að hann Alex er búinn með reynslutímann sinn!!!! Já það er mikill léttir fyrir hann, ég vissi alltaf að þetta myndi ganga upp. En hér í Þýskalandi er hægt að segja fólki upp vinnu á reynslutímanum án þess að þurfa að gefa skýringu af hverju. Eftir reynslutímann er það hins vegar mjög erfitt. Segir maður starfsmanni upp þá annað hvort með góðri og gildri ástæðu, fullur í vinnu eða eitthvað þess háttar eða að vinnuveitandi þarf að borga starfsmanni fyrir að hætta. Það eru þá laun í einn mánuð fyrir hvert ár sem starfsmaðurinn hefur unnið á staðnum. Staðan í dag hér er sú að vinnuveitendur ganga jafnvel svo langt að fara fram á gjaldþrot til að geta sagt upp eins og fimmtíu starfsmönnum. Hætta með starfsemi og fara svo yfir til Póllands og hefja þar rekstur að nýju. Það er alltaf verið að vinna í rétti starfsmanna hér og auðvitað er margt mjög ýkt en þetta gerir það að verkum að þú þarft oft á tíðum að leggja ansi mikið á þig til að halda vinnunni þinni. Með því á ég við að vinnuveitandi gerir það viljandi að láta mikinn þrýsting yfir á starfsmenn.

En ég er jú atvinnulaus og er stolt af því.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters