miðvikudagur, maí 05, 2004

Ég er búin að vera að fara yfir alls kyns myndir, gamlar og nýrri. Ég var svo hissa á mörgum þeirra og hafði svo gaman af því að skoða þær. Það komu upp alls kyns minningar og það kom yfir mig svo mikil værð og ánægja yfir öllu því sem ég hef upplifað í bráðum þrjátíu ár. Ég er mjög hamingjusöm yfir því hvernig líf mitt er og hefur verið. Verð að viðurkenna að ég hef gert alls kyns vitleysu og prufað margt en ég tel það hafa hjálpað mér á þeirri leið sem ég átti fyrir mér í lífinu. Mér finnst það stórfurðulegt að það er svo margt í lífinu sem við gerum eða verðum fyrir sem ákveður stand okkar og það er ekki undir okkur komið að taka ákvörðun varðandi hlutina. Svolítið ruglingsleg hugsun en vonandi skilur maður þetta. Til dæmis, að maður fæðist inn í fjölskyldu sem bjó á Akranesi! Til dæmis að maður á þrjú systkyni! Að maður verður ástfanginn og það nær að þróast í samband! Ég meina hve oft hefur maður orðið fyrir ástarskoti í lífinu en það varð aldrei neitt úr neinu, nefni engin nöfn. Eða ákvörðun eins og að ég hafi lent hjá þessari fjölskyldu þegar ég var sem skiptinemi, annars hefði ég t.d. sennilega aldrei kynnst Alex. Já furðulegt, svo þegar við erum að taka ákvörðun þá veltum við öllu fyrir okkur, fram og til baka og erum óviss og hrædd við að taka ákvörðun. Við erum algjört skrýpalið.... Eins og við ráðum einhverju,,,,, jeeee...

En ég ætla að fara að hafa pistlana mína hnitmiðaðri, er að hugsa um að hætta að telja svona upp allt sem hefur gerst og svoleiðis, frekar eitthvað í þessa átt. Hvað finnst lesendum? Ég er alveg að verða frústreruð að geta ekki drullað mér í að sauma (laga) gardýnurnar í svefnherbergið.... svo mikið að gera í myndaflokkuninni!!!

ps Nína bakaði þessa fínu köku um helgina, alein, alveg frábært hjá henni. Já og Nína vill að ég segi að hún hafi misst tönn á þriðjudeginum í seinustu viku, það er eins og hún sé eitthvað beibý. Talaði við reikningskennarann í dag, hún er svo löt að byrja að vinna í skólanum, verð að láta mér detta eitthvað í hug. Uppástungur vel þegnar, og þvegnar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters