fimmtudagur, desember 23, 2004

Jólafrí

Nína og Alex eru komin í jólafrí, æðislegt að fá þau heim. Hjá Nínu var guðsþjónusta í kirkjunni á skólatíma í morgun, fyrsta sinn sem Nína tók þátt í kaþólskri messu og henni fannst bara fínt. Ég fór í klippingu í morgun og er nú með ljósar strípur en lét bara stytta þannig að það er nú ekki mikill munur. Í kvöld koma svo tengdapabbi með frúnni sinni og Christoph bróðir Alex. Þá verður gaman að borða smákökur og drekka jólabjór eða Gluhwein og syngja og spila jólalög. Lærið komið í marineringu og Laxinn að fíla sig.... Allt rúllandi gaman og við ætlum nú aðeins að kíkja út í bæ.

Ef ég skrifa ekki á morgun þá óska ég ykkur gleðilegra jóla....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters