Versla, taka til og þrífa
Það er stefnuskráin til jóla. Í dag ætla ég að versla það sem eftir er að versla, á morgun að þrífa aðeins og búa um rúmin fyrir gestina.
Í gær gekk allt vel, Nína náði að halda sér vakandi þar til hún mátti sofna á sjúkrahúsinu og það sem kom út úr þessu var að það má fara að taka hana af lyfjunum og sjá hvort veikin sé ekki bara horfin. Þetta var það besta sem við gátum óskað okkur þannig að nú getum við haldið gleðileg jól, nei djók. En í alvöru þá er þetta frábært. Læknirinn sagði auðvitað höfum við samt enga tryggingu á að hún fái ekki flog aftur en það væri um að gera að reyna þetta. Gó Nína....
Svo þegar hún var búin í reiðtíma og búin í sturtu hér heima þá borðuðum við kvöldmat, spagetti klukkan hálf sex. Hún sofnaði næstum við matarborðið, fór svo upp í herbergi og ég las pínku fyrir hana, henni finnst það enn svo gaman. Svo kl. sex var mín sofnuð. Hálftíma síðar kom nágrannastelpan og ætlaði að láta hana við hvað væri að læra ómg, svo mikið sem var að læra en ég sagði að hún myndi ekki gera það. Reikningspróf í dag, alltaf eitthvað í gangi og ég er mest svekkt yfir því að fyrsti jólafrísdagurinn þeirra er aðfangadagur, mjög sorglegt. En við erum svo vel undirbúin að það er allt í lagi....Jæja best að fara að versla, bið að heilsa í bili ykkar Helga


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home