miðvikudagur, desember 22, 2004

Sagan

Sagan er vissulega mikilvægur þáttur í lífi okkar allra. Ég er þá að meina saga landsins okkar, saga heimsins og saga stjórnmála svo eitthvað sé nefnt. Mismikið hefur þó sagan neikvæð áhrif á líf okkar en það fer eftir því hver sagan er, vissulega og hve þjóðarstolt þjóðin er!

Alex er að lesa bók sem bekkurinn hennar Nínu á að lesa á nýja árinu. Bók um þjóðfélag á meðal músa, semsagt nokkurs konar músarbók. En Alex finnst þessi bók á engan hátt vera barnabók þar sem hún endurspeglar stjórnmálastöðu í heimstyrjöldinni síðari! Ekki væru börn á Íslandi látin lesa bók í fjórða bekk um það hvernig einn einstaklingur fær her með sér til að fylgja áformum sem eru gagnstæð þeim markmiðum sem við flest lifum eftir. Mjög sérstakt nokk. Á foreldrafundi kom það fram að margir foreldranna væru glaðir að börnin fengju að kynnast slíku efni í svo öruggu umhverfi sem barnaskólinn er! Kennarinn hvatti foreldra að láta börnin tala við ömmur og afa og annað gamalmenni sem hefði upplifað stríðið, um stríðið og allt sem því fylgdi!

Alex var svo mikið um þennan lestur að hann hringdi í kennarann og vildi bara lýsa andstöðu sinni gagnvart því að börnin væru látin lesa þessa bók. Það verður engu breytt þar sem allir foreldrar eru búnir að kaupa bókina og kennarinn búinn að skipuleggja vinnuna í kring um bókina. Mikilvægt er bara að maður láti skoðun sína í ljós og sé gagnrýnn í hugsun, auðvitað ber það ekki alltaf árangur sem skyldi að segja skoðun sína og öllu jafna græðir maður frekar þegar maður opinberar ekki skoðun sína en þegar barn manns er í húfi verður manneskjan að vera sjálfri sér samkvæm. Hún er nú svo frábær ANNARS, kennarinn að þessi skoðanaskipti milli Alex og hennar eiga ekki eftir að skaða Nínu á nokkurn hátt.

Kannski ekki skemmtilegt viðfangsefni svo stuttu fyrir gleði ljóss og friðar en þetta er daglegt líf. Svona nokkuð mundi aldrei vera á kennsludagskrá í fjórða bekk á Íslandi! Eða hvað?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters