þriðjudagur, desember 28, 2004

Jólin búin og nýja árið að nálgast

Hæ hæ kæra fólk.
Vonandi áttu allir gleðileg jól í faðmi fjölskyldunnar. Við áttum mjög góð jól með miklum eldaskap og fjöri. Við vorum með gesti yfir jólin og það var mjög gaman hjá okkur. Fórum seint að sofa og sváfum lengi, borðuðum mikið, fórum í göngutúr, spiluðum spil og horfðum á sjónó. Prógram sem allir kannast við. Ég spilaði reyndar líka á gítarinn og við gerðum svol. skemmtilegt núna, þegar við vorum búin að borða á aðfangadag og búið var að ganga frá og hella uppá kaffi þá sungum við helling af jólalögum, ég spilaði undir á gítar og Alex á píanóið, ótrúlega gaman.

ég er svoooo ánægð með jólagjafirnar mínar ég fékk:
Gulleyrnalokka,
þrennar þýskar bækur: Exodus (LEon Uris), Der Schamane (Noah Gordon), Nackt (David Sedaris),
eina ísl. bók, Barn að eilífu (Sigm. Ernir)
2 hálsmen, eitt gull með perlu og eitt silfur með rauðri rós
gítarbók
Þvottapoka saumaðann af Nínu
hjólatösku til að hafa til hliðar á böglaberanum
leðurhanska
ryksugu
2 geisladiska
salt og piparstauka
kristalskertastjaka í mismunandi hæð
listarverk, inrammaður ísl.steinn

já ég vona að ég hefi ekki gleymt neinu en svona margar jólagjafir hef ég ekki fengið síðan ég var krakki spáið í því.

En núna er undirbúningur fyrir áramótagleðina en ég er alveg búin að ákveða að það verður sungið og spilað og ég þarf að æfa mig fyrir það.... gaman gaman
bið aðheilsa ykkur í bili og ég óska ykkur ánægjustunda með fjölskyldunni....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters