Áramótagleði
Verður haldin hjá okkur þetta árið með þeim ektahjónum Önnu og Daniel að heimili okkar í Coesfeld. Já og ég er búin að baka kleinur í dag og fletja út laufarbrauðskökur sem við ætlum að skera út saman á morgun þegar þau koma. MAmma ég gerði bara 1/4 af uppskriftinni sem þú settir á bloggið þitt. Þetta var í fyrsta sinn sem ég bakaði kleinur og ég varð eiginlega fyrir vonbrigðum. Ég hélt alltaf að þetta væri svooo mikið mál en það má nú eiginlega segja að það sé meira mál að gera gerdeig rétt og vel en að baka kleinur ég segi það satt. Ég mana alla hér með að gera kleinur, uppskriftin er á unnir uppskriftir á þessari síðu. Ég var með tólgina of heita, ég fann það eftir á, þegar þær voru bakaðar kleinurnar og heldur dökkar, ég veit það næst. Í minni fjölskyldu hefur það löngum verið þannig að ömmur baka kleinur og enginn annar, síðan að móðir mín varð amma þá er hún líka farin að baka kleinur og ég vil hér bara taka það fram að ég er ekki orðin eða að verða amma.....
Við ætlum að borða Raclett og skjóta svo auðvitað upp flugeldum hér fyrir framan húsið okkar, það verður gaman, svo spilum við örugglega eitthvað, kannski mar horfi á áramótaskaupið, aldrei að vita, eða taki það bara upp á dvd og horfi á það daginn eftir útaf tímamismuninum, hehe.
Góða skemmtun og munið að fara varlega í drykkju og í að gera áramótaheit, haldið ykkur við það sem þið getið staðið við... Gleðilegt ár og ég þakka skemmtilegar stundir með ykkur á árinu sem nú senn er að líða og hlakka til allra þeirra samverustunda sem við eigum eftir að eiga samhuga á næstu misserum. Kæru lesendur lifið heil og haldið áfram að kíkja á mig....


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home