laugardagur, janúar 15, 2005

Alex kominn og allt í gúddí

Lambalæri a la Alex í kvöldmatinn með grænmetispönnu og salati. Kannski ís og æris í eftirrétt, hlakka til að borða. Það er svo skrýtið að þegar fjölskyldan er í heild sinni er skemmtilegra að elda og borða eitthvað sérstaklega gott. Maður verður auðvitað alltaf að borða það er satt en þegar fjölskyldan sameinast eftir frí og vinnu þá er alltaf sérlega gaman hjá okkur. ÉG keypti svooo stórt lambalæri á Íslandi að það komst ekki í frystihólf hjá mér og því er hátíðarmatur nú í dag. Gaman að því. Á morgun er svo Fondu, sem okkur finnst sérlega skemmtilegt að borða.

Þetta verður bara matardálkur í dag. Matur er skemmtilegt viðfangsefni og lífsnauðsynlegt fyrirbæri.

Ég er orðin svo svöng að ég held ég hætti núna og fari að narta í eitthvað hjá honum Alex í eldhúsinu. Vinnuskiptingin hjá okkur er þannig að hann eldar sérlega vel læri og svína og nautasteikur en allt annað, svona dagsdaglegan mat elda ég, já og fínu gæsina geri ég líka. Ég hugsa að það sé almennt skipting í matargerð á heimilum, kannski mismunandi en oftast taka báðir aðilar þátt í matargerð á einn eða annann hátt. Hvernig er það hjá ykkur?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters