laugardagur, janúar 08, 2005

Hann átti afmæli í gær, hann varð 21 árs í gær hann átti afmæli í gær

Atli minn, til hamingju með afmælið krúsídúllan þín. Það er nú alveg með ólíkindum að þú sért orðinn 21 árs og nánst orðinn smiður og næstum kominn með stúdent. Alveg finnst mér frábært hvað þú stendur þig vel í þínum málum og ég óska þér alls hins besta fyrir framtíðina með áframhaldandi velgengni í starfi og í prívat lífinu.

Við fórum í bæinn í gær, að hitta hjúkkurnar og svo að halda upp á afmæli Atla, borðuðum á Hereford steikhúsinu og að matnum loknum fórum við svo í keiluhöllina í tvo sjömanna keiluleiki og ég get svarið það að það kom mér mjög á óvart hve léleg ég er í keilu. Ég er fylgismanneskja þess að maður geti ómögulega verið á öllum sviðum en hef löngum talið mig ágætis íþróttamanneskju. Nú fer ég hinsvegar að efast um mína íþróttagetu ómg..... Í seinni leiknum fékk ég að hafa hliðarnar sem litlu krakkarnir mega hafa uppi þannig að þá var ég amk leikhæf.

Óli og Guðrún Lilja kærasta hans voru ótrúlega góð í fyrsta leiknum en svo fór lukka þeirra í leiknum að dafna í síðari leiknum. Kannski voru þau farin að hugsa um eitthvað annað á þeirri stundu leiksins.
Í það heila var þetta mjög vel lukkaður dagur og eyddi ég síðustu klukkutímum dagsins í spjall við Þórð og mömmu og með æris í annari, mjög huggulegt það.

Allt í allt er ég mjög ánægð með að hafa komið til landsins þrátt fyrir stutt stopp en ég er svo jákvæð og hugsa sem svo að eitthvað er betra en ekki neitt og kem því mjög jákvætt út úr þessu.

Á morgun held ég svo heim til Coesfeld og er í huganum farin að huga að lestarferðinni frá Amsterdam en ég er ekki með lestarmiða heim þannig að vonandi gengur þetta allt sem smurt svo að við séum komnar tímanlega heim. Nínu veitir ekki af almennilegum svefni fyrir fyrsta skóladeginum sem er á mánudeginum því svo fer hún í reiðtíma og er meira en nóg að gera hjá henni á mánud.

Við förum í bæinn á eftir, leggjum af stað héðan um kl.18 og ætlum að borða saman Pizzu hjá Þóru eða Óla (Síðasta kvöldmáltíðin), sláum þessu upp í kæruleysi og pöntum bara pizzu. Svo ætlum við Nina að gista hjá Þóru. Flugið er 7:50 í fyrramálið.....

Ég þakka fyrir stutta en skemmtilega heimsókn og þakka þeim sem sáu sér fært að hitta mig og knúsa.....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters