fimmtudagur, janúar 06, 2005

Á Íslandi

Er gaman, í vondu veeeðððriii reynir mar, að komast í pottinn af og til....

Nei segi bara svona en ótrúlega erum við óheppnar með veður, alveg svoleiðis snjóbylur og stormur, snjóflóð á vestfjörðum og leiðinda hálka þannig að ég varla treysti mér til að keyra um götur Akranes. Í Reykjavík er auðvitað saltað svo mikið að bílarnir verða allir hvítir...

Við höfum það mjög gott hjá mömmu, frábært að við séum öll saman systkinin og að Hlynur krútt hafi komið til okkar í gær. Reyndar hitti svo óheppilega á að hann fékk niðurgang, frekar leiðinlegt fyrir hann, illt í maganum og ógeð bara. En hann er svo duglegur og vonandi er þetta fljótt að ganga yfir. Nína fór út í garð í dag og gerði þennan fína snjókarl með gulrót fyrir nef, trefil og jólatrésgreinar fyrir handleggi, ótrúlega flottur karlinn sá. Annars höfðum við það bara mjög fínt í dag, slöppuðum af, vorum rétt klædd fyrir hádegi og borðuðum þennan dýrindis kvöldmat sem var grillaður kjúlli og franskar, í gær var pönnusteiktur fiskur, þar áður, súpa og brauð og á fyrsta deginum, sunnudeginum var lambahryggur sem er uppáhaldsmaturinn minn á Íslandi fyrir utan rjúpur og svið....

Nína ætlar að fara með mömmu í skólann á morgun, fá að vera með í matreiðslutíma og kíkja svo í bekk hjá Kim en hún átti einu sinni heima í Þýskalandi og Nína hefur hitt hana nokkrum sinnum. Mamma hennar er íslensk og pabbinn þýskur, alveg eins og hjá okkur og hjá Önnu og Daniel...
Nína var svo spennt að hún náði varla að sofna í kvöld, hún þyrfti að fara með skrifblokk með sér og kb banka pennann, nesti, brauð með heimagerðu rækjusalati og kakómjólk, svaka prógram í gangi. Svo ætlum við að kíkja seinnipartinn á steinasafnið og á byggðarsafnið það verður gaman....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters