miðvikudagur, janúar 12, 2005

Vor í lofti

Það er svakalega skrýtið að koma heim til sín frá Íslandi (sem er líka heima) útaf veðurfarsbreytingum. Á Íslandi var vægast sagt brjálað veður, stormur, snjór, gler á götum úti og kalt, reyndar fengum við líka mjög fallega daga á milli stormsins. Svo þegar við komum hingað, í 14 Stig, já með ólíkindum og fuglarnir farnir að syngja hástöfum, alveg eins og það sé mars. Meira segja sést í vorlaukana, þeir eru að reyna að gæjast upp úr moldinni. Fólk farið að fá sér ís og maður veit ekki hvernig fatnaði skal klæðast. Nú á að kólna aftur það á vel við eða þannig þegar Alex loksins kemur heim frá Brussel. Ég hlakka til að sjá hann, mér finnst ekki gaman þegar hann er í burtu þótt það venjist. Vantar sterkan líkama hans til að halla mér upp að og leita huggunar hjá, þetta er nú frekara rómantíkst hjá mér. Já tvær vikur í burtu er langur tími.

Ég er búin að vera að stússast smá í að gera síðu fyrir árganginn 1974 sem ég er í. Við ætlum að hafa árgangsmót í vor, það er ekki alveg komið á hreint hvaða dagsetning það verður en jafnvel helgina eftir páskana sem þýðir, iceland hier we come.... again.... Við vorum búin að velta þessu fyrir okkur en það er engin önnur sem hentar eins og þessi. Gott mál, ég þarf aðeins að kynna mér myndarmál og hvernig best er að gera síðu með mörgum myndum. Hann Kristleifur er góður í þessu eins og sjá má á hans árgangssíðu, kannski ég biðji hann um ráð. Svo er bara að leita að myndum hjá ljósmyndasafninu á Akranes.is. Gaman að stússa í svona þegar maður þykist kunna eitthvað. Jæja, ég bið ykkur vel að lifa og klæðið ykkur vel í kuldanum....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters