mánudagur, janúar 03, 2005

Gleðilegt nýtt ár kæru vinir

Hæhæ elsku dúllurnar mínar

Ég sendi ykkur mínar bestu kveðjur héðan frá Akranesi en ég kom hingað með henni Nínu krúttí í gær og við ætlum að gera hér stutt stopp í eina viku og knúsa vini og vandamenn. Eiginlega ætlaði ég að hafa þetta leyndarmál en ég nenni því ekki og segi ykkur öllum því frá þessu hér með.

Systkini mín og amma vissu auðvitað ekki heldur af þessu og það voru ótrúlega fyndin fagnaðarlæti sem brutust út þegar ég kom á Jörundarholt 15 í heimsókn seinnipart sunnudagsins.

Hlakka til að hitta sem flesta og passið ykkur nú á óveðrinu sem gengur yfir á Íslandi...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters