Brauð með kæfu og rauðrófum.
Var í kvöldmatinn í gær. Heimagerð kæfa er eitthvað fínt, ég hef aldrei gert kæfu en hún Fr.Sigríður mamma mín er svo dugleg húsmóðir með meiru að hún gerir kæfu, sýður niður rauðrófur, gerir ís og frómas, bakar kleinur og laufabrauð, mundi helst vilja taka slátur á hverju hausti, ég er viss um að hana klæjar í fingurna að gera það ekki. Heklar og málar gluggana á húsinu sínu og hvað eina, ég er örugglega að gleyma einhverju. Hún er hetja dagsins í dag. Það er margt hægt að læra af henni og nú er hún á fullu í línudans með hóp á Akranesi að æfa fyrir bikarmeistarakeppnina, það verður gaman að fylgjast með því.
Annars er bara allt gott að frétta héðan, ég bíð bara eftir því að heyra eitthvað í sambandi við vinnu, en það kom í stjörnuspá sem ég las á læknastofu útí bæ að ég fengi vinnu í febrúar, svo nákvæmt var það að vísu ekki en ég útfærði skilaboðin á þennan hátt. Já það væri gaman ef loksins færi eitthvað að gerast í mínum atvinnumálum. Bara að hafa virkt hlutverk í samfélaginu er mikilvægt fyrir mig, að vera húsmóðir er fínt, ég hef ekki neitt á móti því en mig vantar staðfestingu frá samfélaginu um að ég sé virkur samfélagsþegn. Skrýtið ekki satt. Fjölskylda manns er það mikilvægasta sem maður hefur í lífinu en samt þarfnast maður staðfestingar frá samfélaginu til að finnast maður vera verðugur þegn í hópnum. En hér finnst konum þetta yfirleitt ekki. Konur í kaþólska litla bænum okkar eru í jafnvægi yfir því að vera heima alla daga, þrífa, skrúbba (glugga tvisvar í mán, alla skápa á mán. fresti, nei ég segi svona en einhver stór verk hljóta að koma oftar undir stækkunarglerið þegar maður er svona mikið heima.) elda mat sem er tilbúinn í hádeginu fyrir börnin þegar þau koma heim úr skólanum, geyma af matnum fyrir eiginmanninn sem kemur þreyttur heim um kvöld úr vinnunni og getur einbeitt sér að sínum málum. Hjálpa börnunum að læra því hér er svo mikill heimalærdómur og þrýstingur á börnin og hafa svo að lokum engan tíma fyrir sjálfa sig!!!! Já furðulegt. Í frítíma taka svo að sér sjálfboða vinnu hjá kirkjunni.....
Væri þetta ekki gaman, ef maður þyrfti ekki neitt meir?


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home