Flottur bíll, úúú
Ég var að þvo bílinn í dag, fékk Alex svo til að setja bónið. Þá var það ekki neitt venjulegt bón heldur eitthvað maraþon dæmi. Jájá alveg að gera hérna þið munið karate kid æfingarnar í heillangan tíma. Svo þurfti ég að klára því hann er farinn að æfa með þríþrautarhópi hér í Coesfeld. En ég veit ekki hvort ég var búin að segja ykkur frá þessu en það skiptir þá engu máli, ég segi það þá bara aftur.
Málið er að það að þvo bílinn, það eiga menn að gera. Konur hafa ekki vit á því!!!! Já það er eitt, NEma,,,, maðurinn hafi öðrum mikilvægari störfum að gegna þá má konan gera það. En hér á okkar heimili er það eiginlega frekar ég sem þvæ bílinn og hef svosem ekki neitt mikið fyrir því. Að far aút með svamp og tvær fötur af vatni, búinn eftir hálftíma. Ég meina ekki neitt svaka vel en það er sama. Karlarnir í götunni eru ekki styttra en hálfan dag að þvo bílinn..... Ég skil ekki hvað þeir eru að gera, þeir kannski þvo með tannbursta og fara svo með tannþráð að innan, til að ná öllu út.... Nei smá djók. En þetta er fyndið því allir sem keyra framhjá þeir trúa ekki sínum eigin augum þegar þeir sjá konu þvo blá opel stationinn okkar... það er þá ég.
Ég er reyndar ekki eins dugleg og þeir því þeir þvo bílinn á hverjum föstudegi. Ég þvæ bílinn stundum á sunnudegi en hér í stang kaþólska hverfinu okkar er stranglega bannað að sýna að maður sé að vinna eitthvað á sunnudögum, sveiattann...
Já og svo er saumó á morgun, hlakka mikið til....


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home