Komin heim
Það er alltaf jafn gott að koma heim. Það er gaman að fara og gera eitthvað en æi, eigið rúm og svona þið skiljið er það ekki.
Ég var geðveikt þreytt í gær þegar við komum hingað heim. Eftir partýið sem var ótrúlega gaman og svo allt ferðalagið en ég verð fljót að jafna mig.
Það var rosalega gaman á gagnfræðingamótinu okkar. Við vorum 15 ára útskriftarhópur úr barnaskólanum. Þetta er alveg einstaklega góðu hópur (segja það ekki allir) nei í alvöru þetta eru svo góðir krakkar og það sýndi sig á kvöldinu. Það var svaka stuð í gangi en allt fór vel fram og lífið er yndislegt. Ég er bara ótrúlega glöð að hafa farið, ég hefði ekki fyrirgefið sjálfri mér það ef ég hefði sleppt þessu. Málið er líka að þetta eru krakkar sem maður hefur voða mismikið hitt og það er svo gaman að hitta þá sem maður hittir sjaldan eða jafnvel aldrei. Takk fyrir frábæra skemmtun kæru félagar. Ég hlakka til að fara á næsta mót.
Mamma, Þórður og Þóra keyrðu mig svo út á völl, Þóra var reyndar bara samferða til Rvíkur þar sem hún fór heim til sín en mamma og Þórður keyrðu mig út á völl. Takk fyrir það. Það var seinkun á fluginu en ég var lent í Amsterdam kl.13:30 og Alex og Nína komu að sækja mig það var mjög gaman að koma til þeirra. Geðveikt veður alveg yfir 20 stig og sól ég byrjaði bara að svitna og svitna.... En heim vorum við komin um 18 því við stoppuðum á leiðinni og Alex fór smá útsýniskrók... leið sem er tveir tímar. Það var fínt, ég svaf nánast alla leiðina. Ótrúlega þreytt.
Ég er alltaf að hugsa um þennan spádóm sem mamma hennar Önnu Siggu las úr bollanum hjá mér. Þrjár ferðir.... við erum að spá í að fara til Barcelóna yfir eina helgi í maí. Þannig að þá eru komnar tvær, hvað verður sú síðasta???? Spennan magnast...
Það er saumó um helgina hjá Ingu í Recklinghausen, hlakka til að hitta skvísurnar aftur, Lúlli og Greta stefna á að mæta og ég ætla að taka Alex og Nínu með mér. Gaman gaman, bara verst að ég er að vinna..... við reddum því.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home