miðvikudagur, apríl 27, 2005

I love it

Nína er algjör dúlla, það staðfestist enn frekar í dag þegar hún kom heim úr skólanum. Settist við matarborðið og byrjaði að borða fisknagga með kartöflumús og salati. Svo byrjaði ég að spyrja hana spjörunum úr. Hún er óræðin þegar hún kemur úr skólanum og ég spyr svona hvort eitthvað sérstakt hafi verið að gerast, hvort hún þurfi að læra mikið og svona eitthvað. Nú við höldum áfram að borða og þá allt í einu segir hún voða ánægð á svipinn:,, ÉG þarf að setja á mig deo (svitarlyktareyði) í dag." Ég alveg, nú er svitalykt af þér. Hún:,, (með sælusvip) JÁ" við fórum að skellihlægja. Hún bað mig að finna af sér svitalyktina, hehehe.... svakalega stolt að vera LOKSINS komin með svitalykt og geta þurft að nota deoið sitt fyrir alvöru sem hún þurfti endilega að kaupa sér fyrir sinn vasapening fyrir bráðum tveimur árum. HAHAHAHAHAHA...

Ég sagði við Nínu að þetta væru það merk tíðindi að ég þyrfti að setja það á bloggið, við skellihlógum en hún var sko ánægð með það að þetta kæmi á bloggið. Og hananú....

Ekki man ég þegar ég fann fyrst svitalykt af sjálfri mér en það er vissulega merkur áfangi. Sum börn eru með svitalykt strax þegar þau eru lítil en Nína hefur haft því láni að fagna að losna við það, þar til núna.... Gaman að geta glaðst yfir svo litlum hlutum finnst ykkur ekki.... Lífið er dásamlegt mundi mamma segja núna. Skál fyrir því.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters