Svaka prógramm
Alveg banastuð á mér á Íslandi, ég næ varla sönsum nema að vera á fullu að heimsækja og vesenast alla daga. Verst er að ég er ekki komin að því að fara til ömmu Lillu, og er búin að vera tvo daga á landinu. Ég gisti í bænum hjá Þóru í gær, hún lætur meira segja Skvísu sofa á ganginum þegar ég kem, hún er svo góð við mig. En það er alltaf gott að vera hjá Þóru, hún á tvíbreytt rúm og við sofum saman í því.
Daginn eftir fór hún um 9 leytið að láta taka teinanan, það er svaka munur á henni, hún var alltaf að fela tennurnar með vörunum og brosti svona bælt bros. En vááá í gær var ekki hægt að sjá neitt bælt bros, mér finnst þetta yngja hana, ég meina hvítar, beinar tennur miðað við já þær voru gular útaf þessum glæru teinafestingum, hún var ekki með stál uppi þannig að það er æðislegt, til hamingju elsku Þóra.
Ég fór og hitti hana í Skeifunni og við verlsuðum þessa svaka gjöf fyrir Óla, hann átti jú afmæli í gær, við versluðum rúmföt, tvö í stíl, lak, kaffivél og kaffibolla þannig að nú fær maður kannski kaffi þegar maður kemur í heimsókn til hans. Frábær gjöf, nema kannski fyrir hann, því hann drekkur ekki kaffi, híhíhíhí..... og hann ætlar ekki að byrja á því. Svol. spes að gefa honum þá svona gjöf ekki satt.....
Já og svo var hjúkkubrunch, við hittumst hjá Systu í Kópavoginum og það voru dýrindis kræsingar, gúllassúpa og brauð með áleggi og svo tvær geggjaðar köku, ein ískaka og ein súkkulaði kaka. Þið getið séð uppskriftirnar á www.hjukkubrunch.blogspot.com auðvitað algjörar kaloríubombur. Hildur kom með nýjustu krúsídúlluna í hópnum með sér. Algjör dúlla og gaman að máta. Þetta eru alveg frábærar stelpur og það er alltaf gaman að hittast, við skoðuðum myndir síðan úr árshátíðinni, sei nó mor!!!!!! Maður missti af miklu, það er óhætt að segja það. Singstar keppni, Limbó, og margt fleira sem ég man ekki alveg þessa stundina.
Svo eftir það fórum við Sigga í leiðangur, ég dró hana með mér til Önnu Siggu og Ragnars Stefáns að hitta þau og litlu páskadísina. Það er alltaf gott að koma til þeirra. Við fengum gratis spádóm í bolla en mamma hennar spáir í bolla og kom ákkúrat í heimsókn á meðan við vorum hjá henni. Dísina er hægt að skoða á www.dalkot.com algjör dúlla líka. Við stoppuðum þar í þrjá klukkutíma og það var eins og Sigga og Anna Sigga væru alltaf búnar að þekkjast og vera vinkonur. Gaman að þessu.
Svo lá leið mín til Þóru og við fórum með Óla upp á Rauðará og fengum okkur að borða í tilefni dagsins og auðvitað útaf mömmu frábæran mat, í boði mömmu með mömmu, Atla og Þórði. Það var geggjað gaman, teknar margar myndir sem birtast vonandi bráðum á einhverju bloggi fjölskyldumeðlima. Ég fór upp á Skaga og gisti hjá mömmu í nótt og við vorum komin hingað um miðnætti, þreytt og sæl.
En núna ætla ég að skella mér í fjöruferð, með Hannesi Þorsteins um fjöruna í Kalmansvík kl.10 svaka spennandi. Best að fá sér morgunmat og taka sig til.
Svo er fundur í dag og Hlynur kíkir í heimsókn. En ég næ vonandi að heimsækja nokkra af vinum og vandamönnum í dag. Gaman gaman. Þetta er nú meiri lesningin en maður verður nú að lofa fólki að fylgjast aðeins með ekki satt. Bestu kveðjur frá Íslandi og það er búið að vera geggjað veður síðan ég kom, sól og hiti, allt að 15 stiga hiti nema slatta rok. Í dag er skýjað en sólin er að reyna að komast í gegnum skýin.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home