þriðjudagur, apríl 26, 2005

Sofa út, borða nóa kropp og drekka Fenchel te

Ég nýt þess að sofa út. Læðast aftur upp í rúm þegar Nína er farin í skólann og Alex í vinnuna. Í morgun fór ég út að kjafta við mömmurnar hér í hverfinu en þær hittast alltaf hálf átta þegar börnin leggja af stað í skólann sem er í um 5 mín fjarlægð frá okkur. Jæja allt í lagi með það. Mér fannst einhvern veginn ég verða að fara út að kjafta í morgun, búin að vera í viku í burtu og svona. Þetta er svona leið þýskra mæðra að sýna að þær hugsi um börn sín, þmt að þær séu svo góðar að vera heimavinnandi. En málið barst að því að leggja sig aftur eftir að börnin séu farin. NEI sögðu þær, ÞAÐ GET ÉG EKKI..... Ég þagði :-) Mér finnst það yndislegt að geta lagt mig, ein heima, ekki neitt sem kallar á mig og í gær svaf ég til hálf ellefu... er þetta normal fyrir konu komin á fertugsaldurinn? Ég hélt að svefnþörfin minnkaði eftir því sem maður eldist!

Eitt sem ég þarf aðeins að losa um. Það er varðandi skólamálin hér í Þýskalandi. Nína er í fjórða bekk núna og þau eru búin að vera í kynfræðslu, læra um evrópulöndin, læra um dýr og náttúru og eitthvað svona sem börn þurfa að læra en núna eru þau búin að vera í nokkrar vikur að ræða um heimstyrjöldina síðari. Já um Hitler, Nasistana, meðferð á gyðingum, lesa aðeins um Önnu Frank og eitthvað svona. Kennarinn talar um þetta á mjög pólitískan hátt og í gær var Alex að ræða við Nínu á leiðinni í reiðtíma en það er rúmur hálftími í bíl. Nína sagðist í raun vera þakklát fyrir að vera íslensk útaf því að ef hún væri þýsk ("sem hún er") þá væri hún með samviskubit yfir stríðinu!!!!! Sko ég fékk gæsahúð við þetta og Alex ofbauð að í 4.bekk væri farið þannig í málið að börnum hreinlega líði illa við að koma frá Þýskalandi. ÖMURLEGT AÐ ÞURFA AÐ FARA SVONA Í ÞETTA ÓGEÐSMÁL. Hún var alveg, já Hitler drap 100 sinnum fleiri gyðinga en heildaríbúar í bænum okkar. Ég meina kommon, þetta eru tíu ára grey sem trúa öllu og geta ekki myndað eigin skoðun á svo pólitísku máli. Eitt er ég viss um, svona mundi ekki gerast í skólum á Íslandi, eða hvað?????

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters