Flug fyrir Nínu
Kostar 40 þúsund og eitthvað. Finnst ykkur þetta eðlilegt. 498 Evrur fyrir 10 ára barn að fljúga heim til fjölskyldunnar í sumar. En ég er búin að panta þetta og hún lendir kl.16 þann 8.júlí og Óli Örn er skráður sem sækjarinn, Þóra ég heyrði í honum í gær og hann sagðist vera í fríi, þá þarft þú ekki að taka þér frí í bankanum. Takk samt elskan. Já og svo flýgur hún aftur til Amsterdam 25.júlí og mamma er skilarinn. Allt skrásett og skráð þannig að ekki neitt fari á mis.... En ég er mjög fúl yfir þjónustunni hjá flugleiðum. Flug fyrir barn má ekki kaupa á netinu en flug í símasölu er 50 evrum dýrara en á netinu, líka fyrir börn þótt möguleikinn sé ekki fyrir hendi að kaupa það á netinu fljúgi börnin ein. Ég skil ekki svona þjónustulund...


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home