miðvikudagur, maí 04, 2005

Dúfurnar

Nína er komin með nýtt áhugamál. Það er að hugsa um og fylgjast með dúfum sem einn nágranninn hér er með á háalofti heima hjá sér. Það eru nýbúið að fæðast hellingur af dúfum og Nína fer til þeirra daglega með einhverjum félaga að sýna dúfurnar og mata þær og dúlla við þær. Ég hef nú alltaf verið á því að þetta séu óþrifadýr. Kúka um allt og eru með bölvuð læti alltaf hreint. En Nína er núna á öðru máli. Hún mátti meira segja eiga eina litla dúfu sem hún skírði Heydu sem er eitthvað á þá leið þýtt yfir á íslensku heyrðu....

En hún er núna upptekinn alla daga vikunnar og hefur mjög gaman af þessu. Fólkið sem er með þessi blessuðu dýr er mjög almennilegt og Nínu finnst mjög gaman að fara til þeirra. Það er nú fyrir mestu. Þau eiga líka hund sem Nína fer stundum með í gönguferð. Svaka gaman.

Í dag var vinnufundur. Ég hef ekki enn heyrt neitt frá vinnustaðnum þar sem ég sótti um vinnuna. Alex er hér standandi yfir mér, að fara að pakka fötum fyrir Barcelóna en hann fer í nótt og kemur á laugard.kvöld. Stutt törn í þetta sinn. Á morgun er frídagur og ég ætla að njóta þess að sofa út. Svo dúllum við okkur eitthvað, kannski kemur Inga Martha í heimsókn með manninum sínum en hún er eitthvað á ferðinni á morgun.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters