Uppstigningardagur
Er haldinn hátíðlegur. Hér er þetta líka Vatertag en það er feðradagur/bóndadagur á íslensku. Svo er mæðradagur 8.maí og svo á gamla konan afmæli 10.maí. Sumum finnst asnalegt að segja að maður eigi afmæli en mér finnst það ekki. Ég ætla að fá mér freyðivín í tilefni dagsins og geri ráð fyrir að það verði engir gestir þannig að ég mun njóta dagsins í faðmi kjarnafjölskyldu minnar. Nína er meira segja í afmæli þannig að hver veit nema ég og Alex förum í sund,gufu,.... eða í hjólatúr (fer eftir veðri). Gaman gaman.
En það er svol. sérstakt með mæðradaginn, börnin í 4.bekk sem ´Nína er í eru búin að vera að undirbúa gjöf í langan tíma fyrir þennan merka dag. En það er ekki neitt gert fyrir pabbana.... Ótrúlegt jafnrétti í gangi.... Það er nú hægt að skilja það á marga vegu, að það þurfi virkilega að hafa fyrir því með börnunum í skólanum að föndra fyrir mömmurnar á meðan mömmurnar sjá um að redda öllu fyrir pabbana eða þá að mömmunum þarf að sýna að þær eru góðar!!!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home