Vinnuhelgi
Já hún loksins búin þessi vinnuhelgin. En ekki verður þessi vinnuvika neitt skárri. Reyndar á ég frí á fimmtudaginn sem er frídagur hér og krakkarnir eru í skólafríi á föstudaginn líka. Svaka flott fyrir þau. Nína ætlar að reyna að fá einhverja vinkonu til að gista hjá sér....
Við fórum í saumaklúbb til Ingu B. í gær en hún býr í Recklinghausen og við erum eitthvað um 40 min að keyra til hennar. Það var gaman að hitta saumó klúbbinn aftur og Lúlli og Greta komu líka með strákana með sér, alveg hálfgert ættarmót! Hálf Húsavík mætt á svæðið, verið að tala um hina og þessa, bara eins og á Akranesi, híhí
Krakkarnir fóru svo með körlunum út í bæ og keyptu sér ís. Svaka gaman enda var geðveikt veður, 31 stig og sól, geri aðrir betur. Í dag verða eitthvað um 29 gráður og sól en svo er bara rigning og druslulegt í bráð. Bíttar ekki .....
Ég er voða spennt að bíða eftir póstinum núna á hverjum degi því ég sótti um vinnu í seinustu viku. Á nú ekki von á að fá þessa vinnu en það er um að gera að halda í vonina ekki satt. Annars var einhver að segja við mig af hverju ég færi ekki að vinna við eitthvað annað en hjúkrun. Í raun mjög góð ábending en við hvað? Ég er búin að vera að hugsa aðeins um þetta og ef ég fer að vinna við eitthvað sem maður er ólærður þá er bara 500 kallinn sem ég sætti mig ekki við þannig að það er ekki margt sem kemur til greina frá 8-12 og engin kvöld og helgarvinna.
Spáum í þessu, það er amk á tæru að ég segi þessari vinnu upp, í síðasta lagi í júní.....


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home