Bólusetningar
Það er augljóst hvað á hug minn allan þessa dagana.
Bólusetningar eru mjög áhugaverður hluti. Ég var nú búin að blogga um daginn með þetta sem lítilsháttar umræðuefni. En við þriggja mánaða aldur barns er því sprautað hér í Þýskalandi í dag sexfaldri bólusetningu í annað lærið og einfaldri bólusetningu í hitt lærið. Sexföld er með Diphterie, polio, hepatitis B, hemophilus influensae, kíghósti og tetanus svo einfalda sprautan pneumokokken en það er nýtt síðan í júlí að það sé gefið. Læknirinn sagði við mig að það væri ekki útilokað að Balthasar hefði veikst upp frá bólusetningu þar sem líkaminn er á fullu að vinna úr þeim efnum sem er sprautað í hann. Gaman!
Sumir eru mjög á móti bólusetningum, það er heldur ekki réttur hugsunarháttur að mínu mati. Ég er reyndar ekkert brjálæðislega hrifin en finnst hitt óvænlegur kostur að bráðum séu þessir barnasjúkdómar skæðari en hefur verið með því að halda þeim niðri. Til dæmis veit maður ekki sem venjulegt foreldri að bólusetningar veita ekki fulla vörn. Alla þessa sjúkdóma getur barnið samt fengið þrátt fyrir að foreldrarnir hafi alltaf látið bólusetja eins og lög gera ráð fyrir. Gaman!
Ég las það á þýskum vef að um 20 þúsund börn í Þýskalandi sýkjast árlega af kíghósta. Ég trúi því samt að þetta sé ekki kíghósti hjá Balthasar! Ein ráfandi í myrkrinu!!! Nei maður verður nú að halda í vonina ekki satt.
Í dag kl.16 förum við svo til skottulækniskonunnar!
Biðjum að heilsa úr kuldanum


5 Comments:
Já þetta er skemmtilegt! Eða hitt þó heldur..
Gangi ykkur vel hjá skottulækninum.
Kv. Þóra
Ég hélt einmitt að bólusetningar væru svo pottþéttar þar til að ég þurfti sjálf að fara 3 í bólusetningu vegna rauðu hundanna eða mislinga, hef samt fengið báða sjúkdómana en mynda bara ekki ónæmi. Vonandi getur náttúrulækningakonan hjálpað!
Sendi góðar heilsukveðjur!!
Ég verð að viðurkenna að ég er bara alls ekki vellt þessu nógu vel fyrir mér. Bara fer með minn mann í sprauturnar og treysti því að hann sé varinn við verstu veirunum!
Vona að kúturinn fari að lagast, ég er viss um að skottulæknirinn gefur þér fleiri mögulegar greiningar á þessu. Knús til litla!
Ég er alveg sammála. Það er miklu mikilvægara að vera varinn fyrir sjúkdómum heldur en að sleppa við aukaverkanir sem börnin geta fengið eftir sprauturnar.
Ég veit til þess að sumt fólk neitar að láta bólusetja börnin sín en er samt sem áður að drífa sig með þau nánast nýfædd í Kringluna eða eitthvað álíka...
Spennandi að heyra frá skottulækninum...
Hæ, þetta hefur allt hjálpað okkur, nú fer boltinn að rúlla...
En Heiðrún þetta er alveg satt hjá þér, að fara í Kringluna með þessi litlu kríli. Alveg óþolandi, en kannski er ekki neitt annað hægt að gera á Íslandi þar sem alltaf er rok og rigning?
kv
Helga
Skrifa ummæli
<< Home