sunnudagur, janúar 21, 2007

*Hóst*

Haldiði að Balthasar sé ekki kominn með sína fyrstu kvefpest. Já alveg merkilegt því ekkert okkar hinna er núna kvefað. Hann svoleiðis hóstar þar til hann kúgast. Ég fór með hann til læknis á fimmtud. og þá heyrðist ekkert í lungunum en það er kannski ekki alveg hægt að treysta þessum lækni. Ég ætla þó að gefa honum sjens og fara til hans á mánudaginn aftur ef morgundagurinn verður ekki svo slæmur. Ég gaf honum stíl og vona að hann sofi eitthvað í nótt þetta krútt.

7 Comments:

Blogger Karen said...

Æjæj litli kúturinn!!
Vona að honum batni sem fyrst.

10:20 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hann er nú skárri í dag verð ég að segja og hitalaus sem er nú bara merki um vírus þannig að við látum hann bara vinna á þessu sjálfan litla kropp.

kv.
Helga

12:43 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Geturðu ekki treyst barnalækninum? Þá myndi ég skipta :)
Vonandi nær litli gaur þessu úr sér en nú er spáð kólnandi svo það er aldrei að vita hvernig blessuðu börnin taka því. Mínir eru báðir kvefaðir.
Heyrumst og batakveðjur
Inga Björk

5:38 e.h.  
Blogger Gunnur said...

Baráttukveðjur til Balthasars! Það er svo vont þegar þessi litlu kríli verða lasin, en sem betur fer eru þau oftast hörð af sér.

Snjókveðjur frá DK,
Gunnur

1:22 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir þetta stelpur, jújú læknirinn er alveg ágætur. ÉG ætla nú samt að fara aftur í vikunni, það er nú bara engin hægðaleikur að fá tíma núna þar sem annað hvert barn er kvefað.

Það er allt byrjað að losna þannig að þetta er á réttri leið. Þrátt fyrir nokkrar kommur.

kv. Helga

1:29 e.h.  
Blogger Systa said...

Ég held að hóstinn og veikindin trufli okkur foreldrana oft meira en börnin ;)
"batna" kveðjur.
Systa

3:52 e.h.  
Blogger Bippi said...

Það er nú gott að þetta sé á réttri leið, það er svo slæmt ef að þessi litlu kríli verða lengi lasin!!

God bedring!

5:04 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters