þriðjudagur, janúar 23, 2007

Enn hósti

Sumt er óskýranlegt. Til dæmis hvernig lítið barn sem fer flestar sínar leiðir í vagninum sínum og hittir ekki svo óhemjumarga (fyrir utan eigin skírn, fjölskylduboð og slíkt) getur náð að smitast af kíghósta. Sem er meira þekktur í þriðjaheimslöndum. Hvar eigum við heima, ekki í þrjiðjaheimslandi heldur í Þýskalandi, í smábæ. Ég veit ekki hvort ég á að trúa lækninum eða ekki. Amk er það staðreynd að hóstinn sem er nú búin að vera síðan í desember er mjög óáheyrilegur. Fær alla til að snúa sér við og horfa á greiið barnið sem sjáanlega kvelst við það að fá hóstakast.
Ég er að vona að þetta sé bara vírus, kannski Rs eða eitthvað en það er kannski ekkert skárra?
Á milli hóstakasta ef svo mætti kalla er barnið eiginlega eins og það á að sér að vera, brosir til allra og hjalar og leikur sér. Við hlustun heyrist ekkert þannig að ekki kemur lungnabólga eða astmi til greina. Þetta gæti líka verið þrálát vírussýking þar sem Balthasar hefur heldur engan hita. Það er ekki til lækning við Kíghósta þannig að nú er bara að gefa hóstasafa (plöntusafi), nota innúðatæki (með adroventdropum til að víkka berkjurnar) og fara á morgun til Náttúrulækningakonunnar og á það legg ég núna mesta von. Það er oft svoleiðis að með náttúrumeðferð nær maður árangri þar sem kemísk skólalæknisfræði ekki nær til! Það eru mjög góðar upplýsingar um Kíghósta á doktor.is. En við erum í einangrun eins og er því hvort sem þetta er kíghósti eða vírus þá erum við smitandi. Brjóstamjólkin hjálpar ekki þegar kíghósti á í hlut! Sendið okkur jákvæða strauma og við sjáum svo hvað kraftaverkin gera.

4 Comments:

Blogger Bippi said...

Æi greyið kallinn að vera með kíghósta!!
Ég fékk kíghósta þegar að ég var lítil og var held ég svolítið lengi með hann. Annars veit ég ekki mikið um þetta en ég vona bara að elsku litla kallinum batni fljótt!

*knús í kotið*

4:33 e.h.  
Blogger Systa said...

Aumingja litli karlinn, þetta er ekki skemmtilegt en er hann ekki bólusettur gegn kíghósta? Hér eru allir bólusettir gegn kíghósta (og mörgu öðru) frá 3 mán aldri.
Krakkar eru stundum með hræðilegan "reykingar"hósta í nokkuð langan tíma án þess að það sé sýking í lungum eða astmi og alls ekki kíghósti.
Góðan bata, kv Systa

4:39 e.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Ég sendi mína bestu strauma Helga mín. Vonandi batnar Balthasar fljótt :)

Bestu kveðjur til ykkar og farið vel með ykkur elskurnar.

5:20 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

áhugavert Systa, hann er med bolusetningu en hún veitir ekki fulla vörn. Vonum tad besta, takk fyrir straumana.... kv. Helga

8:41 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters